Um Byggingatækniskólann
Kennslufyrirkomulag Byggingatækniskólans kvöldskóli/dreifnám vor 2012 er hægt að finna undir liðnum dreifnám.
Aðstaða Byggingatækniskólans.
Húsasmíði: Skólavörðuholt og Skeljanes 9
Húsgagnasmíði: Skólavörðuholt
Málaraiðn: Skólavörðuholt
Múraraiðn: Skeljanes 9
Tækniteiknun: Vörðuskóli
Vegg- og dúklögn: Skólavörðuholt
Skrifstofa skólastjóra: Skólavörðuholt, stofa 142
Byggingatækniskólinn er með síðu á facebook. Vertu vinur okkar :
Byggingatækniskólinn: Fjölbreytt nám á framhaldsskólastigi.
Starfsnám í bygginga- og mannvirkjagerð er skipulagt þannig að nemendur innritast fyrst í sameiginlegt einnar annar grunnnám en velja að því loknu sérnám í einhverri eftirtalinna greina:
• Húsasmíði
• Húsgagnasmíði
• Málun
• Múrsmíði
• Vegg- og dúklögn
Grunnnám:
Grunnámið gefur heildarmynd af bygginga- og mannvirkjaiðnaði þannig að nemandinn á auðveldara með að velja fagsvið að því loknu. Það veitir einnig undirstöðuþekkingu um námsþætti eins og efnisfræði, vélar, áhöld og öryggismál.
Sérnám til starfsréttinda:
Sérnám í einstökum iðngreinum tekur við að grunnnámi loknu. Það tekur að meðaltali þrjú og hálft ár. Misjafnt er eftir iðngreinum hve stór hluti sérnáms fer fram í skóla og hve hluti þess fer fram sem starfsþjálfun á vinnustað. Nemandi sem lýkur sérnámi fær afhent sveinsbréf sem veitir starfsréttindi í greininni.
Ýmsir möguleikar á framhaldsmenntun standa til boð að lokinu sérnámi. Hægt er að auka starfsréttindi með meistaranámi eða stefna að stúdentsprófi eða sambærilegu námi sem veitir réttindi til þess að hefja nám á háskólastigi.
Tækniteiknun:
Tækniteiknun er hagnýtt nám þar sem nemendur læra á öll helstu forrit sem notuð eru til hönnunar á mannvirkjum. Nám í tækniteiknun er einnig kjörin námsleið til undirbúnings á frekara námi í tæknigreinum í byggingariðnaði.
Meistaranám:
Í námi til meistaraprófs er lögð áhersla á stjórnunar og rekstrarþekkingu ásamt þekkingu á lögum og reglugerðum um byggingariðnaðinn.
Stúdentspróf:
Nemandi sem er í starfsnámi á framhaldsskólastigi á kost á viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi. Slíku námi lýkur með stúdentsprófi.
Nám á háskólastigi:
Hafi byggingariðnaðarmaður notað þær leiðir sem færar eru til undirbúnings námi á háskólastigi bjóðast honum ýmsir valkostir. Hann getur til dæmis aflað sér menntunar í:
• Byggingarfræði
• Byggingariðnfræði
• Byggingartæknifræði
• Umhverfis- og byggingarverkfræði
• Arkitektúr
• Húsgagna- og innanhússarkitektúr


