Skóli atvinnulífsins

Námsframboð

Byggingatækniskólinn

Í Byggingatækniskólanum eru fimm verknámsbrautir og að auki nám í tækniteiknun

Námið hefst á sameiginlegu einnar annar grunnnámi fyrir allar greinar í byggingaiðnaði. Eftir það skiptist námið í fimm brautir:

Húsasmíði, þar vinna nemendur alls konar smíðaverkefni og ljúka skólanámi með smíði sumarhúss.

Húsgagnasmíði, þar er mikil áhersla á hönnun og efnisfræði og nemendur vinna lokaverkefni, t.d. stóla eða skápa, sem þeir hanna, teikna og smíða.

Málaraiðn, námið er mikið verklegt og nemendur læra bæði húsamálun og ýmiss konar skrautmálun.

Í múrsmíði læra nemendur að múra hús en vaxandi áhersla er á alls konar hleðslur og flísalagnir.

Í veggfóðrun læra nemendur meðferð gólfefna, flísalagnir, teppalagnir og hvað annað sem tengist greininni. Auk verklegrar þjálfunar læra nemendur efnisfræði, fagteikningar og ýmsar almennar greinar. Síðasti hluti námsins fer fram á námssamningi hjá meistara í iðngreininni og lýkur með sveinsprófi. Nám í skóla og hjá meistara tekur samtals fjögur ár.

Tækniteiknarar vinna sérhæfð teiknistörf og annast frágang og faglega umsjón með teikningum og tilheyrandi gögnum með hliðsjón af gæðastöðlum. Meðal nýmæla í störfum tækniteiknara er kerfisstjórnun teiknikerfa, grafísk hönnun, framsetning og kynning gagna. Ennfremur stjórnun skjalavistunar auk ýmissa skipulagsstarfa og sérhæfðra skrifstofustarfa.

Námið er 108 einingar samtals og tekur að meðaltali 6 annir í skóla. Það skiptist í almennar greinar, bundnar sérgreinar og sérgreinar skv. vali nemanda og skóla.





Tækniskólinn
 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica