fbpx
Menu

Silfursmíði

Námskeið fyrir þá sem hafa áhuga á smíði eðalmálma. Þátttakendur læra að beita helstu verkfærum gull- og silfursmíðinnar og að vinna með eldinn í mótun skartgripa. Tilvalið fyrir þá sem vilja fá innsýn í hvernig silfurhlutur verður til.

Silfursmíði

Námskeiðsgjald

103.000 kr.

Dagsetning

22. janúar 2024 - 18. mars 2024

Fyrirspurnir

[email protected]

Námskeiðslýsing

Þátttakendur  læra um helstu eiginleika silfurs, læra að móta silfur og kveikja saman, þ.e. að beita eldi vð kveikingar.  Þá eru kennd notkun á helstu verkfærum gull- og silfursmíðinnar.  Þátttakendur vinna fyrst að grunnverkefnum og geta svo smíðað skartgripi að sínum eigin hugmyndum.

Námskeiðið hefur gagnast þeim sem hafa hug á að sækja um skólavist í gull- og silfursmíði, sem undirbúningur fyrir umsóknarferlið.  Það gagnast einnig þeim sem langar að skyggnast inn í þennan heim og útbúa sér sitt eigið skart. Námskeiðin hafa sótt byrjendur sem og þeir sem lengra eru komnir.  Markmiðið er að hver og einn fái góða kennslu og leiðbeiningu og því komast aðeins átta þátttakendur að í hvert námskeið.

  • Leiðbeinandi

    Jóhannes Arnljóts Ottósson

  • Hámarksfjöldi

    8

  • Forkröfur

    Engar

  • Fréttabréf

    Skráðu þig á póstlista Endurmenntunarskólans.

Nánari upplýsingar

Tími:

22. janúar mánudagur 18:00 – 21:30
29. janúar mánudagur 18:00 – 21:30
5. febrúar mánudagur 18:00 – 21:30
12. febrúar mánudagur 18:00 – 21:30
26. febrúar mánudagur 18:00 – 21:30
4. mars mánudagur 18:00 – 21:30
11. mars mánudagur 18:00 – 21:30
18. mars mánudagur 18:00 – 21:30

Alls 28 klukkutímar

Námskeiðsgjald: 103.000 kr.
Efni: Innifalið er efni að andvirði 10.000 kr.

Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

Jóhannes Arnljóts Ottósson kennari við gull- og silfursmíðabraut Tækniskólans.

Gjaldfært er af greiðslukortum viku áður en námskeið hefst.

Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólahringa fyrirvara (virkir dagar) á [email protected]

Skráningargjald er ekki ekki endurgreitt.
Gjaldskrá Endurmenntunarskólans

Frjálst verkefnaval og frábær kennari

Skemmtilegast er ađ viđ ráđum algjörlega hvađa gripi viđ smíđum og hönnum þá sjálf.

Lifandi og skemmtileg kennsla.

Mjög góð aðstaða.

FAQ

Spurt og svarað

Þarf maður að koma með verkfæri með sér?

Nei öll verkfæri eru á staðnum.

Er þetta námskeið eingöngu fyrir byrjendur?

Nei námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa verið áður.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.