Þrívíddarhreyfimyndagerð - Nýtt!
Vorönn 2013
Grunnnámskeið í hreyfimyndagerð í þrívíddarforritinu Maya.
Námskeiðið byggist á því að þátttandinn öðlist skilning á hinum marglita heimi hreyfimynda og hvaða lögmál eru til staðar og hvernig þau virka. Í enda námskeiðs verður gerð stutt „Animation“ mynd.
Leiðbeinandi: Haukur Páll Finnsson
Tími: Vorönn 2013
fjögur kvöld frá kl. 18:00 til 22:00
Alls 24 kennslustundir/16 klukkustundir.
Námskeiðsgjald: 35.200 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Námsefni: Rafrænt efni frá kennara.
Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (áður Sjómannaskólinn).
Kennt er í Margmiðlunarskólanum sem er á jarðhæð.
Hámarksfjöldi: 12
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólahringa fyrirvara.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í síma 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is.
Til að fá skírteini að loknu námskeiði þurfa þátttakendur að vera með lágmark 80% mætingu.
Smelltu hér til að skoða fréttabréf Endurmenntunarskólans og til að skrá þig á póstlistann okkar.
Smelltu hér og skoðaðu fleiri spennandi námskeið í margmiðlun!
