Skóli atvinnulífsins

Revit þrívíddarforrit grunnur  Fullt 6. september, skráð á biðlista. Næg pláss 5. október.

 

Í námskeiðinu er farið í notkun á Revit Architecture 2011 sem notað er til hlutbundinnar mannvirkjahönnunar og er það ætlað tæknimenntuðu fólki sem vinnur á því sviði.

Unnin eru sex verkefni þar sem farið er kerfisbundið í eitt verk. Byggt er upp módel fyrir ákveðið hús og út frá því fengnar grunnmyndir, snið og ásýndir sem svo í lokin er sett upp á blöð sem Aðaluppdráttur.

Nemendur fá aðgang að 30 daga leyfi á kerfinu og myndbönd af því hvernig verkefnin er unnin. Til að námskeiðið nýtist sem best er gert ráð fyrir einhverri heimavinnu á milli tíma. Æskilegt er að nemendur taki með sér heyrnartól til að geta skoðað myndbönd í tímum.

Kennarar við tækniteiknunarsvið Byggingatækniskóla, Tækniskólans. Aðalkennari Gunnar Kjartansson, verkfræðingur.

Námskeiðsgjald:  45.000 kr.

Staðsetning: Tækniskólinn, Skólavörðuholti, st. 620 í Vörðuskóla, sjá hér http://www.tskoli.is/um-okkur/husnaedi/

Tími: 6., 7., 9., 27., 28. september og 4. október, kl. 19:00 - 22:00 og laugardaginn 18. september, kl. 9:00 - 16:00. Alls 25 klst. (37,5 kst). 

https://www.namsnet.is/tskoli/applications/?progid=11254

 

Tími: 5., 6., 7., 19., 20. og 21. október og 2., 3. og 4. nóvember, kl. 13:00 - 15:50. Alls 25 klst. (37,5 kst). https://www.namsnet.is/tskoli/applications/?progid=12195

 

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is

Námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd nema forföll hafi verið tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.

 

Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

 

 




Tækniskólinn


Tungumál


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica