Margmiðlunarnámskeið í nýjum húsakynnum Margmiðlunarskólans
2 áhugaverð námskeið í boði á næstunni!
HTML og CSS3 - Nýtt!
15. - 23. maí 2012
Þátttakendur þurfa að kunna skil á HTML til að námskeiðið nýtist þeim sem best.
Áttu smartsíma? En iPad?
Flottustu vefsíðurnar sem þú sérð þar eru að öllum líkindum búnar til með HTML5 og CSS3 en það er tæknin sem borgar sig að kunna í dag.
Á námskeiðinu er farið í grunnatriði HTML5, hvernig staðallinn er frábrugðinn fyrri stöðlum, hvað dettur út og hvað er nýtt og flott komið inn. Einnig er farið í grunnatriði CSS3 og þetta tvinnað saman.
Fyrstu þrjú námskeiðskvöldin fara í að læra hlutina og gera prufur að heimasíðum og síðasta kvöldið í gerð lokaverkefnis.
Nemendur eru hvattir til að koma með hugmyndir að lokaverkefni sem nýtir tæknina og allt sem hún býður upp á, þ.m.t. gagnvirkni, hreyfingar o.fl.
Kennari: Berglind Káradóttir kennari í Margmiðlunarskólanum.
Tími:
15. maí - þriðjudagur kl. 18:00 - 22:00
16. maí - miðvikudagur kl. 18:00 - 22:00
21. maí - mánudagur kl. 18:00 - 22:00
23. maí - miðvikudagur kl.18:00 - 22:0
Alls 16 klukkustundir/24 kennslustundir
Námskeiðsgjald. 35.200 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Námsefni: Rafrænt efni frá kennara.
Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (áður Sjómannaskólinn).
Kennt er í Margmiðlunarskólanum sem er á jarðhæð.
Hard surface modeling - Nýtt!
14. - 23. maí 2012
Viltu læra að módela hús, höll eða geimskip?
Á námskeiðinu lærir þú að módela hluti í þrívídd. Þessi módel geturðu notað í tölvuleiki og stuttmyndir.
Kennari: Bernharð Aðalsteinsson kennari í Margmiðlunarskólanum
Tími:
14. maí mánudagur
16. maí miðvikudagur
21. maí mánudagur
23. maí miðvikudagur
kl. 18:00 - 22:00
Alls 24 kennslustundir/16 klukkustundir
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Námsefni:Rafrænt efni frá kennara.
Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (áður Sjómannaskólinn).
Kennt er í Margmiðlunarskólanum sem er á jarðhæð.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást í Endurmenntunarskólanum í síma 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is
Námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd nema forföll hafi verið tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Smelltu hér og skoðaðu fréttabréf Endurmenntunar skolans og skráðu þig á póstlistann okkar!

