Skóli atvinnulífsins

AutoCad námskeið

 

Á námskeiðinu fram kynning á notkun AutoCad sem notað er við tölvuteikningu. Lögð er áhersla á að efla skilning nemenda á rýmum út frá tvívíðum teikningum. Nemendur læra grunnskipanir Autocad með æfingum og kynnast undirstöðu tölvuteikningar í teiknikerfum.

Þeir þjálfast í að teikna flatarmyndir í tölvu eftir hefðbundnum stöðlum og teiknireglum Lögð er áhersla á þjálfun í lestri teikninga og mælikvarða, vinnu eftir málum og teiknireglum, notkun lagskiptinga, línugerða og merkinga sem og skölun teikninga og uppsetningu teikninga.

Þá læra nemendur að setja saman og ganga frá teikningum vel framsettum til útprentunar og vistunar.

Nemendur fá aðgang að 30 daga leyfi á kerfinu og myndglærur af því hvernig verkefnin eru unnin.  Til að námskeiðið nýtist sem best er gert ráð fyrir einhverri heimavinnu á milli tíma.  Æskilegt er að nemendur taki með sér heyrnartól til að geta skoðað myndglærur í tímum.
 

Kennarar við tækniteiknunarsvið Byggingatækniskóla, Tækniskólans. Aðalkennari Viggó Magnússon.

Tími: Dagsetning auglýst bráðlega

Námskeiðsgjald:  37.500 kr.

Staðsetning: Tækniskólinn, Skólavörðuholti, Vörðuskóla stofa 620 á kvöldin og 631 á laugardeginum. sjá hér http://www.tskoli.is/um-okkur/husnaedi/

 

https://www.namsnet.is/tskoli/applications/?progid=

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást í Endurmenntunarskólanum í s.5149601 eða á endurmenntun@tskoli.is

Námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd nema forföll hafi verið tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.

Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

 




Tækniskólinn


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica