Skóli atvinnulífsins
Vélgæslunámskeið

 

Námið veitir réttindi til að vera vélavörður á skipi með 750 kW vél og minni og 12 metrar og styttra að skráningarlengd.  Um er að ræða bóklegt og verklegt nám. Verklegi þátturinn felst í almennri vélstjórn og bilanagreiningu og skal tilsvara 16 kennslustundum.

Farið verður í álagskeyrslu véla, dísilvélina + kerfi, forhleðslu, rafmagn, eldsneyti + kerfi, afgas + kerfi, varahluti og vetrargeymslu, reglur, kælikerfi (freon!), vökvakerfi og frágang véla. Námskeiðinu lýkur með prófi.

Að loknu 7 eininga fagtengdu viðbótarnámi öðlast hann rétt til að vera yfirvélstjóri á skipi með 750 kW vél og minni og 24 metrar og styttra að skráningarlengd að loknum tilgreindum siglingatíma. Sjá nánar á www.sigling.is

 

Kennarar við Véltækniskólann.

Tími: 8. - 21. apríl 2010. Mæting kl. 18:00 í vélahúsi Véltækniskólans.

Kennsla fer fram mán. - fös. frá kl. 18:00 - 22:30 og laugardaga. frá kl. 8:00 - 17:30, alls 85 kst.

Námskeiðsgjald: 96.000 kr.

Staðsetning: Tækniskólinn, Háteigsvegi (áður Sjómannaskólinn). Kennt er í vélahúsi Véltækniskólans, austan við aðalbygginguna. 

 

SKRÁNING HÉR

 

Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

 

Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.  

 

Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9601 eða á endurmenntun@tskoli.is

 





Tækniskólinn


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica