Skóli atvinnulífsins
Undirbúningur fyrir skemmtibátapróf

 Undirbúningur fyrir skemmtibátapróf

Kennd verða bókleg atriði, sem krafist er skv. námskrá til skemmtibátaprófs, í siglingafræði, siglingareglum og stöðugleika. Bóklegt og verklegt próf veitir  siglingaréttindi á 24 m skemmtibáta. Námskeið eru haldin ef næg þátttaka fæst. Námskeiðinu fylgir vönduð mappa með námsgögnum og bókin Stjórn og sigling skipa.

Kennsla fer fram hjá Skipstjórnarskólanum í Tækniskólanum v/Háteigsveg (áður Stýrimannaskólinn) í st. 302. Nánari upplýsingar um stofu verða í anddyri skólans við upphaf námskeiðs. 

Kennari: Kjartan Örn Kjartansson við Skipstjórnarskólann og veitir hann upplýsingar um námskeiðið í s. 665 1100.

Námskeið verður 9. - 16. október 2010

Námskeiðið verður kennt á eftirfarandi tímum:

Laugardaginn 9. október frá kl. 08:30 til kl. 18:00 (kennsla),

Sunnudaginn 10. október frá kl. 08:30 til kl. 18:00 (kennsla),

Miðvikudaginn 13. október frá kl. 18:00 til kl. 21:00 (kennsla/upprifjun),

Laugardaginn 16. október frá kl. 13:00 til kl. 16:00 (próf).

 

Námskeiðsgjald: 28.500 kr. með bóklegu prófi.

SKRÁNING HÉR

 

Námskeiðið er einnig í fjarnámi, sjá lýsingu undir Undirbúningsnámskeið fyrir skemmtibátapróf - fjarnám. 

 

Þátttakendur þurfa að hafa eftirfarandi gögn með sér á námskeiðið:

Sjókort nr. 36, samsíðung, hringfara (sirkill) og reglustiku, almenn ritföng og glósubók.

Öll námsgögn fást hjá Raför, Sundaborg 1 (fyrir ofan Eimskip), sími 552 3424.

 

Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með þriggja sólarhringa fyrirvara.

 

Nánari upplýsingar fást hjá Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is

 




Tækniskólinn


Tungumál


 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica