Skemmtibátanámskeið - fjarnám
13. maí - 24. ágúst 2013 - Umsóknarfrestur er til 24. júní
Kennd verða bókleg atriði, sem krafist er skv. námskrá til skemmtibátaprófs, í siglingafræði, siglingareglum og stöðugleika.Veitir réttindi á að stjórna skemmtibát styttri en 24 metrar.
Námsgögn: Þátttakendur þurfa að nota eftirfarandi gögn á námskeiðinu:
- Sjókort nr. 36
- siglingarfræðigráðuhorn
- hringfara (sirkil)
- reglustiku (50 cm)
- almenn ritföng (skrúfublýant 0,5 mm og gott strokleður)
- glósubók
- reiknivél.
Öll námsgögn fást hjá Viking björgunarbúnaði – sími 544 2270.
Tími: 13. maí - 24. ágúst 2013
Leiðbeinandi: Kjartan Örn Kjartansson kennari við Skipstjórnarskóla Tækniskólans og veitir hann upplýsingar
um námskeiðið í síma 895 1414.
Námskeiðsgjald: 35.000 kr. með bóklegu prófi.
Umsóknarfrestur er til 24. júní 2013
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is.
Til að fá skírteini að loknu námskeiði þurfa þátttakendur að ná lágmarkseinkunn á prófi.
Smelltu hér og skoðaðu fréttabréf Endurmenntunarskólans og skráðu þig á póstlistann okkar.
