Skemmtibátanámskeið - fjarnám, 8. mars - 17. apríl 2010.
Á námskeiðinu verða kennd bókleg atriði, sem krafist er skv. námskrá til skemmtibátaprófs, í siglingafræði, siglingareglum og stöðugleika. Bóklegt og verklegt próf veitir siglingaréttindi á 24 m skemmtibáta.
Prófin verða haldin í Tækniskólanum við Háteigsveg en nemendur geta samið við skóla í sínu sveitarfélagi um að útvega þeim aðstöðu til próftöku og yfirsáta en það er háð samþykki Tækniskólans.
Námið er bóklegt og þannig uppbyggt að öll bókleg kennsla fer fram í fjarnámi í gegunum námsetið. Námskeiðið lýkur síðan með bókklegu prófi.
Kennari: Kjartan Örn Kjartansson við Skipstjórnarskólann og veitir hann upplýsingar um námskeiðið í s. 665 1100.
Námskeiðsgjald: 28.500 kr. með bóklegu prófi sem haldið verður laugardaginn 17. apríl 2010 í Tækniskólanum.
SKRÁNING HÉR
Þátttakendur þurfa eftirfarandi gögn á námskeiðinu.
Sjókort nr. 36, samsíðung, hringfara (sirkill) og reglustika, almenn ritföng og glósubók.
Öll námsgögn fást t.d. hjá Raför, Sundaborg 1 (fyrir ofan Eimskip), sími 552 3424.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Nánari upplýsingar fást hjá Endurmenntunarskólanum í s. 514 9601 eða á endurmenntun@tskoli.is

