Smáskipanámskeið 12 m - staðarnám
Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008.
Á námskeiðinu verða kennd bókleg atriði sem krafist er samkvæmt námskrá um skipstjórnarnám: siglingafræði og samlíkir, slysavarnir, siglingareglur og sjóréttur, siglingatæki og fjarskipti, skipahönnun og vélfræði, stöðugleiki og skipstjórn, veðurfræði og umhverfisvernd.
Þeir, sem ljúka smáskipaprófi, geta tekið verklegt próf og öðlast þar með einnig skemmtibátaréttindi á 24 metra skemmtibáta.
Námsgögn: Sjókort númer 31 og 365, samsíðungur, reglustika, sirkill, reiknivél og almenn ritföng á námskeiðið. Fæst víða um landið en einnig er hægt er að panta þessi námsgögn hjá Raför – sími: 552 3424.
Að loknu smáskipanámi þarf að sækja um atvinnuskírteini hjá Siglingastofnun Íslands, Vesturvör 2 í Kópavogi. Upplýsingar um útgáfu atvinnuskírteina eru hér.
Námskeiðið er einnig í fjarnámi, sjá lýsingu undir Smáskipanámskeið - fjarnám.
Kennarar við Skipstjórnarskóla Tækniskólans. Upplýsingar um námskeiðið veitir Kjartan Örn Kjartansson í s. 665 1100.
Námskeiðsgjald: 105.000 kr.
Tími: 2. september - 16. október 2010. Kennt er nokkur kvöld í viku frá kl. 18:00 - 22:25, alls 105 kennslustundir.
Tími:18. október - 27. nóvember 2010. Kennt er nokkur kvöld í viku frá kl. 18:00 - 22:25, 105 kennslustundir.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

