Smáskipanámskeið 12 metrar og styttri - lotufjarnám
Næsta lotufjarnám í smáskipanámskeiði hefst 2. september 2010 og lýkur 16. október.
Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008.
Á námskeiðinu verða kennd bókleg atriði sem krafist er samkvæmt námskrá um skipstjórnarnám: siglingafræði og samlíkir, slysavarnir, siglingareglur og sjóréttur, siglingatæki og fjarskipti, skipahönnun og vélfræði, stöðugleiki og skipstjórn, veðurfræði og umhverfisvernd.
Þeir sem ljúka smáskipaprófi geta tekið verklegt próf og öðlast þar með einnig skemmtibátaréttindi á 24 metra skemmtibáta.
Prófin verða haldin í Tækniskólanum við Háteigsveg (Sjómannaskólinn) en nemendur geta samið við skóla í sínu sveitarfélagi um að útvega þeim aðstöðu til próftöku og yfirsáta en þetta er háð samþykki Tækniskólans.
Kennari aðstoðar við námið jafnóðum og boðið er upp á undirbúning/aukatíma fyrir lokaprófið.
Að loknu smáskipanámi þarf að sækja um atvinnuskírteini hjá Siglingastofnun Íslands, Vesturvör 2 í Kópavogi. Upplýsingar um útgáfu atvinnuskírteina eru hér.
Kennarar við Skipstjórnarskólann. Upplýsingar um námskeiðið veitir aðalkennarinn Kjartan Örn Kjartansson í s. 665 1100.
Námskeiðsgjald: 105.000 kr.
Tími: 2. september - 16. október 2010. Námskeiðið er í fjarnámi með einni staðbundinni lotu í Tækniskólanum, dagana fyrir prófið í október. Þátttakendum er skylt að mæta í lotuna til að geta útskrifast.
Reiknað er með að verkleg innilota verði dagana 14. og 15. október kl. 8:00 - 18:00 og 16. október kl. 9:00 - 16:00 í Tækniskólanum Háteigsvegi, Sjómannaskólanum. Athugið að þessar dagsetningar eru settar inn með fyrirvara um breytingu.
Tími: 18. október - 27. nóvember 2010. Námskeiðið er í fjarnámi með einni staðbundinni lotu í Tækniskólanum, dagana fyrir prófið í nóvember. Þátttakendum er skylt að mæta í lotuna til að geta útskrifast.
Kröfur til þátttakenda
Nemendur verða að hafa tölvu til umráða og að geta unnið á kennsluvef (ætti að henta flestum).
Bókleg kennsla fer fram á Námsnetinu (Námsnet er kennsluvefurinn okkar og er aðgengilegur hér neðst á síðunni).
Kennslugögn
Öll kennslugögn verða á kennsluvefnum en kennari námskeiðsins notar tablet kennslutölvu auk video kennslumyndbanda gerð af honum. Allt almennt kennsluefni verður inni á Námsnetinu.
Námsgögn
Nemendur þurfa sjókort númer 31 og 365, samsíðung, reglustiku, sirkil, reiknivél og almenn ritföng á námskeiðinu. Fæst víða um landið en einnig er hægt er að panta þessi námsgögn hjá Raför – sími: 552 3424.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

