Hásetafræðsla - aðstoðarmaður í brú
21. - 23. maí 2013
Markmið með námskeiðinu er að nemendur öðlist fræðslu og þjálfun til að uppfylla sett lágmarksskilyrði til útgáfu skírteinis til varðstöðu í brú á stoðsviði, sbr. staðall STCW-A, II/4.
Efnisþættir: Áttavitinn, stýrisskipanir, sjálfstýring/handstýring, siglingareglur, neyðarmerki, sjómerki, viðvörunarkerfi og neyðarbaujur, vaktreglur og vaktaskipti, grundvallaratriði ratsjár og dýptarmælis.
Að hluta kennt í samlíkjum.
Æskilegt er að umsækjendur hafi verið á sjó í einhvern tíma til að námskeiðið nýtist þeim.
Að námskeiði loknu þurfa þátttakendur að sækja um atvinnuskírteini hjá Siglingastofnun Íslands, Vesturröst 2 í Kópavogi. Upplýsingar um útgáfu skírteinisins og hvaða gögn þurfa að fylgja eru hér.
Tími:
| 21. maí |
þriðjudagur |
kl. 08:10 - 12:35 og 13:15 - 16:00 |
| 22. maí |
miðvikudagur |
kl. 08:10 - 12:35 og 13:15 - 15:20 |
| 23. maí |
fimmtudagur |
kl. 08:10 - 12:35 og 13:15 - 14:35 |
Alls 18 klukkustundir / 27 kennslustundir.
Leiðbeinendur: Vilmundur Víðir Sigurðsson og Þórður Þórðarson kennarar í Skipstjórnarskóla Tækniskólans.
Námskeiðsgjald: 65.000 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Staðsetning: stofa 201 í Tækniskólanum við Háteigsveg (áður Sjómannaskólinn).
Hámarksfjöldi: 14.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is.
Til að fá skírteini að loknu námskeiði þurfa þátttakendur að vera með 100% mætingu.
Smelltu hér og skoðaðu fréttabréf Endurmenntunarskólans og skráðu þig á póstlistann okkar.
