Námskeiðið er tvískipt. Annars vegar GMDSS-GOC og hins vegar GMDSS-ROC sem er styttra námskeið og hentar þeim sem ætla að ná sér í 65 BT réttindi. Kennt skv. STCW staðli um GMDSS alþjóða neyðar- og öryggisfjarskiptakerfið.
Efnisþættir: Kynntar reglur Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) og alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO), NAVTEX - sjálfvirk móttaka á öryggistilkynningum, stafrænt valkall DSC, radio-telex, INMARSAT - gervihnattafjarskipti, radíóneyðarbaujur, - EPIRB, COSPAS/SARSAT, ratsjársvari (SART). Verklegar æfingar.
Kennari: Þórður Þórðarson kennari við Skipstjórnarskólann.
Það er fullbókað á námskeiðin. þú getur skráð þig á námskeiðið og verður þá á biðlista. Haft verður samband við þig ef það losnar pláss. Það verður ekki tekið af kredítkortum fyrir en að þú hefur verið staðfestur á námskeiðið.
GMDSS-GOC
Tími: 17. - 27. maí 2010. Mæting kl. 14:00 mánudaginn 17. maí.
GOC námskeiðsgjald:.125.000 kr.
Staðsetning: Kennt er í fjarskiptastofu Skipstjórnarskólans, st. 313 á 3. hæð Tækniskólans v/Háteigsveg.
GMDSS-ROC
Tími: 17. - 21. maí 2010. Mæting kl. 14:00 mánudaginn 17. maí.
ROC námskeiðsgjald: 65.000 kr.
Staðsetning: Kennt er í fjarskiptastofu Skipstjórnarskólans, st. 313 á 3. hæð Tækniskólans v/Háteigsveg. SKRÁNING HÉR
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9601 eða á endurmenntun@tskoli.is

