Námskeiðið er ætlað tónlistar- og áhugafólki um gítarleik. Á námskeiðinu er einn einfaldur gítareffect smíðaður eftir teikningu og nákvæmum fyrirmælum. Fjallað er um hvernig gítareffect vinnur, hvað þarf að hafa í huga gagnvart virkni og truflunum. Markmiðið er að nemendur klári að smíða tækið á námskeiðinu og geti prófað það í lokin en séu jafnframt orðnir að mestu sjálfbjarga í smíði slíkra tækja.
Kennari: Þröstur Ingólfur Víðisson.
Tími: Laugardagana 11., 18. og 25. september 2010, frá kl.9:00 – 13:00 alls 12 klukkustundir.
Námskeiðsgjald: 32.000 kr
Staðsetning: Tækniskólinn, Raftækniskólinn, Skólavörðuholti stofa 305.
https://www.namsnet.is/tskoli/applications/?progid=11219
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í síma 514 9602, á endurmenntun@tskoli.is
eða Raftækniskólanum í síma 514 9251, og á vgv@tskoli.is.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

