Skóli atvinnulífsins

Gítareffektar

Haustönn 2012

GitareffektarNyNámskeiðið er ætlað tónlistar- og áhugafólki um gítarleik.

Á námskeiðinu er einn einfaldur gítareffekt smíðaður eftir teikningu og nákvæmum fyrirmælum. Fjallað er um hvernig gítareffekt vinnur, hvað þarf að hafa í huga gagnvart virkni og truflunum. Markmiðið er að nemendur klári að smíða tækið á námskeiðinu og geti prófað það í lokin en séu jafnframt orðnir að mestu sjálfbjarga í smíði slíkra tækja.


Námskeiðið er ætlað byrjendum og er  engrar menntunar krafist.

Efni í effecta er innifalið í verði námskeiðs og allir smíða eins effect, Classic Overdrive.
Ástæðan er sú að þar sem ætla má að flestir þátttakendur séu byrjendur veitir ekki af 12 tímum til að allir geti klárað sitt stykki.

Kennari: Þröstur Ingólfur Víðisson.

Tími: Haustönn 2012
laugardagur kl. 09:00 - 17:00 og sunnudagur kl. 09:00 - 13:00
Alls 18 kennslustundir eða 12 klukkustundir.

Námskeiðsgjald: 34.500 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

Staðsetning: Tækniskólinn, Raftækniskólinn, Skólavörðuholti stofa 305.

https://namsnet.tskoli.is/applications/?progid=11219

Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í síma 514 9602, á endurmenntun@tskoli.is

eða Raftækniskólanum í síma 514 9251 og á vgv@tskoli.is.

Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.

Smelltu hér til að skoða fréttabréf Endurmenntunarskólans og til að skrá þig á póstlistann okkar.






Tungumál