Húsgagnaviðgerðir
Fjallað er um orsakir og eðli skemmda á húsgögnum einnig að aldursgreina ( lesa ) húsgagn og finna út hvar það er smíðað og hvenær, einnig hvort um sé að ræða sérsmíði og verðmætan hlut. Kynna sér hvernig það er smíðað hvaða aðferð og efni voru notuð. Meta með nemendum hvernig á að laga hlutinn, hversu mikið og langt skal ganga með þá viðgerð. Finna út hvaða viðgerðarefni er rétt að nota þá með hliðsjón af aldri mublunar. Hvað er öldrun í húsgagni og hvernig á að meðhöndla hana.
Kennslan er kynning og sýnikennsla á þeim fjölmörgu efnum og aðferðum sem notuð eru til viðgerða á gömlum húsgögnum.
Kennari: Magnús Ólafsson kennari við Byggingatækniskólann.
Tími: þriðjudaga og fimmtudaga 5. - 21. október 2010, kl. 17:30 - 21:00.
Námskeiðsgjald: 29.000 kr.
Staðsetning: Tækniskólinn Skólavörðuholti. Smíðastofur í vesturálmu á 2. hæð.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is

