Smíðað úr innlendum við
Námskeiðið hefst með kynningu á innlendum við og sýnikennslu. Fjallað verður um kosti og
galla einstakra trjátegunda og hverni g hægt er að nýta þann við sem fellur
til við grisjun og fellingu trjáa, ekki síst í görðum. Farið verður í smíði húsgagna, kofa, lítilla nytjahluta og skrautmuna.
Verkleg þjálfun verður skipulögð í samráði við þátttakendur og út frá verkefnum þeirra. Þátttakendur taka með sér viðarbút sem hentar í það sem á að smíða skal sem og tálguhníf.
Hugmyndir að smíðagripum: Bolli eða skál gerð í rennibekk. Eldhúsamboð sem verða formuð í bandsög, tálguð og beygð í form með hitun og fullunnin.
Hægt er að útvega tálguhníf og viðarbúta gegn gjaldi ef óskað er eftir því. Tálguhnífur kostar 2000 kr.
Kennari: Jón Guðmundsson trérennismiður og plöntulífeðlisfræðingur.
Tími: 19. og 21. okt. 2010, kl. 19:30 - 22:00. Fyrri daginn er sýnikennsla og verkleg þjálfun í þeim seinni.
Námskeiðsgjald: 14.500 kr.
Staðsetning: Tækniskólinn Skólavörðuholti, smíðastofur.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar fást hjá Endurmenntunarskólanum í s. 514 9601 eða á netfangið endurmenntun@tskoli.is

