Skírnarkjólar
Ömmur, mömmur, frænkur, systur og allir sem langar að hanna og sauma skírnarkjól fjölskyldunnar!
Boðið verður upp á námskeið í skírnarkjólasaum í samstarfi við kjólaklæðskera Eðalklæði ehf.
Þátttakendur koma með eigin saumavélar og leiðbeint verður um val og kaup á efni í skírnarkjólinn.
Fyrsta kvöldið fer fram kynning, þátttakendur bera fram óskir sínar, efni og snið valin út frá þeim. Þátttakendur geta tekið með sér prufur í fyrsta tímann ef þeir vilja. Hugsanlega þarf að panta efni erlendis frá og þá er gott að vera ekki búinn að kaupa mikið áður.
Næsta skipti, tveimur vikum seinna, hefst vinnan við snið og saumaskap. Gera þarf ráð fyrir heimavinnu og því er nauðsynlegt að þátttakendur hafi einhverja reynslu af saumaskap.
Kennarar: Malen Dögg Þorsteinsdóttir kjólaklæðskeri og Ása Lára Axelsdóttir kjólaklæðskeri.
Tími: dagsetning verður auglýst bráðlega.
Verð: 34.700 kr.
Staðsetning: Tækniskólinn, Skólavörðuholti eða Háteigsvegi. Nánar síðar.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. tveggja sólarhringa fyrirvara.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9601 eða á ave@tskoli.is

