Langar þig að prjóna lopapeysu? Fullt, skráð á biðlista
Á námskeiðinu er þátttakendum leiðbeint við prjón á flíkum úr lopa, einkum lopapeysu, lopavesti, lopaskokk eða öðru sem þeim dettur í hug. Þátttakendum er kennt að fara eftir uppskrift, breyta henni ef óskað er eftir því og að hanna mynstur að eigin óskum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 manns.
Kennari: Bryndís Bragadóttir textílhönnuður og kennari.
Tími: 14. sept. - 12. okt. 2010 á þriðjud. kl. 19:30 - 22:00, alls 25 klst.
Námskeiðsgjald: 22.000 kr.
Staðsetning: Tækniskólinn, Skólavörðuholti, stofa 408.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is

