Bifreiðar - viðhald og viðgerðir
Markmiðið með námskeiðinu er að gefa þátttakendum kost á að öðlast innsýn og færni í að sjá um viðhald og minni viðgerðir á bifreið. Verkleg þjálfun undir leiðsögn reyndra bifreiðaviðgerðamanna.
Viðfangsefnin eru hjólbarðar - umhirða bifreiðar - umhirða á vél og krami.
Leiðbeinandi frá Nú – þú, sjálfsþjónustunni.
Tími: mánudaga og miðvikudaga 8. - 22. september 2010, kl. 19:00 - 22:00.
Námskeiðsgjald: 42.500.-
Staðsetning: Húsnæði Nú - þú sjálfsþjónustu í Hafnarfirði. www.nuthu.is
Nánari lýsing
Dagur 1. Hjólbarðar
a) Skipt um hjólbarða
b) Notkun viðgerðarsetts við að tappa göt í hjólbörðum
c) Sprautun kvoðu í hjólbarða
d) Loftmæling hjólbarða
e) Hjólbarðahreinsun
f) Lausir hjólbarðar, boltar, misslit o.fl.
Dagur 2. Umhirða bifreiðar
a) Efnisval (hvaða efni á að nota og hvernig á að meðhöndla þau)
b) Tjöruþrif - tjöruhreinsun
c) Bón
d) Þrif á sætum og innréttingum
e) Umhirða á ál- og krómhlutum
f) Hreinsun og þrif á þurrkublöðum
Dagur 3 – 5. Umhirða á vél og krami.
a) Olíumæling: skipti á síum, s.s. olíusíu, loftsíu, hrásolíusíu.
b) Skipta um olíu og smyrja.
c) Perur – ljósabúnaður yfirfarinn
d) Viftur – allar reimar á vélbúnað bílsins
e) Bremsur – bremsubúnaður yfirfarinn, skipt um klossa og borða. Mat lagt á diska og skálar.
f) Viðhald gírkassa. Olía mæld á gírkassa og drifum. Spindilkúlur og hjólalegur metnar og skipt um eftir þörfum.
g) Viðhald eða umskipti á pústkerfi.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Ath! Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Nánari upplýsingar fást í Endurmenntunarskólanum í s. 514 9602 eða á endurmenntun@tskoli.is

