Námsvísir, stundaskrár og námsval
Námsvísirinn er skólasnámskrá Tækniskólans. Skólinn starfar eftir áfangakerfi. Námi í bóklegum og verklegum greinum er skipt niður í áfanga sem hver um sig varir í eina önn. Áfangar gefa einingar eftir því hve viðamiklir þeir eru. Námslok miðast við að nemendur hafi lokið tilskildum áföngum og einingafjölda eins og tilgreint er í brautarlýsingum í námsvísi. Þegar nemandi sækir um skólavist velur hann jafnframt áfanga fyrir komandi önn.
Námsvísir
Námsvísir skólaárið 2011-2012
Námsvísir skólaárið 2010-2011
Námsvísir skólaárið 2009-2010
Námsvísir skólaárið 2008-2009
(Athugið að námsvísarnir eru á pdf formi og að þeir eru yfir 300 síður.)
Stundaskrár
Nemendur dagskóla finna stundaskrár sínar í Innu.
Námsval
Námsval nemenda takmarkast af eftirfarandi atriðum:
- Undanfarareglum
- Skyldugreinum námsbrauta
- Áföngum í boði
- Einkunn í undanfaraáfanga
- Samþykki viðkomandi deilda
- Fjölda eininga, sbr. kaflann Námskröfur
- Nemandi sem fallið hefur í áfanga eða áföngum eða sagt sig úr áfanga eða áföngum getur ekki vænst þess að fá að velja meira en tveim einingum fleiri en hann stóðst á önninni.
Val fyrir næstu önn fer fram í viðtalstíma hjá umsjónarkennara og í síðasta lagi á valdegi. Velja nemendur sér þá námsáfanga fyrir næstu önn. Valið er bindandi. Aðalval nefnast þeir áfangar sem nemandi kýs helst að stunda nám í á næstu önn.
Stundum verður þó að breyta vali nemanda til þess að unnt reynist að setja saman stundaskrár og eru þá áfangar úr varavali hans settir inn í stað þess eða þeirra áfanga sem ekki komust fyrir í stundaskránni.
Valgreinar
Allir bóklegir námsáfangar og sumir verklegir standa nemendum til boða, að fengnu samþykki viðkomandi skóla, fullnægi þeir skilyrðum um undanfara. Gildir einu á hvaða braut þeir eru. Tækniskólinn kann að bjóða upp á áfanga sem ekki eru í skólanámskrá og verða þeir auglýstir sérstaklega.
Fjöldi kennslustunda
Að jafnaði skal nemandi sem er í fullu námi sækja mest:
a) 36 stundir á viku ef um er að ræða bóknám.
b) 42 stundir á viku ef um er að ræða blandað bók- og verknám eða verknám eingöngu.
Þeir nemendur sem fá námslán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna geta sótt um að taka þann fjölda eininga sem lánasjóðurinn gerir kröfur til hverju sinni.
Töflubreytingadagur
Í upphafi hverrar annar er sérstakur dagur þar sem nemendur geta óskað eftir breytingum á stundatöflum sínum. Töflubreytingar eru ekki gerðar á öðrum tíma og aðeins ef verulegir annmarkar eru á töflunum.
Heimild til árekstra
Við stundatöflugerð og töflubreytingar er heimilt að ganga þannig frá stundatöflu nemenda að árekstur sé á milli áfanga. Nemandinn getur þá sagt sig úr öðrum hvorum áfanganum eða sótt þá báða. Nemandi ákveði í samráði við kennara í hvorn áfangann hann mætir þegar árekstur er. Nemandanum er skylt að gera kennurum í áföngum grein fyrir árekstrinum.
Reglur um úrsögn úr áföngum
- Nemendur geta sagt sig úr áfanga fyrstu tvær vikurnar af önninni og fengið felld niður fjarvistarstig.
- Nemendur undir 18 ára aldri geta aðeins sagt sig úr áfanga með samþykki forráðamanns.
P-áfangar
P-heimild er ekki veitt nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum:
- Ef útskriftarnemi þarf að ljúka áfanga sem ekki er í boði í dagskóla, kvöld- eða dreifnámi þá getur hann sótt um P-áfanga.
- Umsóknir um P-áfanga þurfa að berast skólastjóra eða skrifstofu skólans í fyrstu kennsluviku. Viku síðar liggur svar fyrir og þá birtist áfanginn ásamt nafni kennara í Innu og á Námsneti sem áfangi sem ekki er í töflu með hópanúmerið P. Nemendur þurfa að hafa samband við kennara strax ef umsókn þeirra hefur verið samþykkt og standa skil á verkefnum eins og aðrir nemendur. Skólastjórar tilkynna nemendum í tölvupósti ef umsókn er hafnað.
