Prent- og aðgangskort
Prentkortin eru pöntuð og afgreidd á bókasöfnum skólans. Ef einhver vandræði eru með þau er best að snúa sér fyrst til starfsfólks bókasafnanna.
Ekki er þörf á leyninúmeri fyrir prentkortin. Notkun þeirra sem aðgangskort er alfarið í höndum skólastjóra hvers skóla en nauðsynlegt er að eignast kort fyrst til að hægt sé að virkja aðganginn.
ATH!! Nú er eina leiðin til að prenta út sú að vera skráð/ur inn á tölvuna kennitöluna og nota kortið í prentarana sem er tengt við það númer.
Kortin kosta 500 kr. en það kostar 2.000 kr. að endurnýja glatað kort.
Til að nálgast prentverk í prenturum eða til að ljósrita á fjölnotavélum þurfa nemendur að hafa prentkort, annars geta þeir ekki sótt þau verk sem þeir hafa prentað út. Kortinu fylgja a.m.k. 100 prenteiningar, sumar brautir fá fleiri einingar. A4 svart/hvítt er 1 prenteining en A4 í lit er 2 prenteiningar A3 svart/hvítt er 2 einingar og A3 í lit er 4 einingar.
Til þess að eignast kort og koma prenthluta þeirra í gagnið, þarf að framkvæma tvennt:
- Nemendur sækja um prentkort á bókasöfnum eða á skrifstofum og greiða þar 500 kr. Þar er valið hvort sækja á kortið á bókasafn skólans á Háteigsvegi eða Skólavörðuholti, þar sem þau verða tilbúin eftir 1-2 daga.
-
Áður en kortið er notað þarf að virkja það. Starfsfólk bókasafnsins gerir það en einnig er hægt að fara á þessa síðu:
http://prentkort.tskoli.is/.Til að komast inn á síðuna þarf að "treysta" henni með því að velja "Continue to this website" í Internet Explorer eða "Add Exception" í Firefox. Þar skráir nemandi sig inn með tölvuaðgangi sínum, kennitölunni og leyniorðinu að Innunni, velur Pin Management og slær þar inn 5 stafa tölu sem er aftan á kortinu, sjá mynd til hægri (12345). Með því að fara í "Back to account status" ætti að sjást hve mikil inneign er á kortinu. Alltaf er hægt að skoða inneignina á þessari síðu.
Nánari leiðbeiningar eru hér (pdf).
Til að prenta út þarf að hafa eftirfarandi í huga:

-
Ekki er hægt að senda beint á ákveðinn prentara eins og áður var og ekki er hægt að prenta út af aðganginum nemond.
-
Að vera skráður inn í tölvuna á kennitölu þess sem ætlar að sækja útprentunina. Það er ekki hægt að sækja útprentun nema á korti þeirrar/þess sem skráð/ur er í tölvuna!
-
Að velja eina af þremur prentstýringum eftir því hvað er verið að prenta út.
-
Þær eru allar stilltar á A4 pappírsstærð og því þarf að velja A3 sérstaklega í "Printing preferences".
-
A3-A4 Litur er litaprentarinn.
