Lína Tækniskólans
Upplýsingar fyrir nemendur og foreldra
Línan - Vefrit (upplýsingar um valið, skólagjöld, próf o.fl.)
Tækniskólalínan - Amennar upplýsingar
Þjónusta
Aðalskrifstofa skólans er staðsett á annarri hæð við aðalinnganginn á Skólavörðuholti. Hún er opin frá kl. 08:00 - 15:00 alla virka daga.
Skrifstofa skólans á Háteigsvegi er í upplýsinga-miðstöð/bókasafni á 4. hæð.
Tölvuþjónusta
Allir nemendur hafa aðgang að tölvukerfi Tækniskólans. Aðgangur að þráðlausu neti er fyrir alla nemendur Tækniskólans.
Inna
Til þess að fá aðgang að Innu http://www.inna.is/Nemendur/ er smellt á “Sækja lykilorð.” Nemendur skrá inn kennitölu og skóla, og fá þá sent lykilorð í tölvupósti. Sama gildir um þá nemendur ekki hafa farið inn í kerfið áður. Aðstandendur ólögráða nemenda fá einnig aðgang að Innu. Í Innu geta nemendur skoðað stundatöflu, námsframvindu, fjarvistir og miðannarmat. Tengill fyrir Innu er á heimasíðu skólans. Mikilvægt er að nemendur gæti þess að netföng þeirra og símanúmer séu rétt skráð í Innu.
Námsnetið
Námsnetið er kennslukerfi sem notað er í samskiptum kennara og nemenda. Þar nálgast nemandi kennslugögn, verkefni, fyrirmæli frá kennara, þar er einnig umræðuþráður fyrir nemendur og kennara. Aðgangs-og lykilorð að Námsneti eru þau sömu og að Innu. Tengill fyrir Námsnet er á heimasíðu skólans.
Bókasafn
Bókasafn skólans er á tveimur stöðum, Háteigsvegi og Skólavörðuholti. Starfsfólk safnsins aðstoðar nemendur við upplýsingaleit og heimildaöflun. Lesstofur og tölvur eru á báðum stöðum.
Einnig er aðstaða til prentunar og skönnunar. Fartölvur eru til notkunar innan safnanna.
Bókasafn Skólavörðuholt, 5. hæð.
Opið: mánudaga til fimmtudaga 8:10-17:00,
föstudaga 8:10-16:00.
Bókasafn Háteigsvegi, 4. hæð.
Opið: mánudaga til föstudaga 8:10-16:00.
Geymsluskápar
Bæði á Háteigsvegi og Skólavörðuholti eru geymsluskápar til afnota fyrir nemendur án endurgjalds. Reglurnar eru einfaldar: fyrstur kemur fyrstur fær - ef skápur er opinn er hann laus til notkunar. Nota skal eigin lás. Skápa á að tæma og skilja eftir opna í lok skólaárs 1. júní ár hvert. Eftir það verður klippt á lása sem enn eru á skápum og innihaldi skápanna fargað.
Upplýsingar um fjarvistir kennara
Fjarvistir kennara eru tilkynntar í Innu með tölvupósti og/eða með SMS skilaboðum. Fjarvistir koma einnig fram á heimasíðu skólans af forsíðunni.
Mötuneyti
Mötuneyti er á 3. hæð í aðalbyggingu Tækniskólans á Skólavörðuholti.
Mötuneyti á Háteigsvegi er á 4. hæð.
Áfangar
Áfangi 1024S og 1024H?
Athugið að áfangar merktir S, eru kenndir á Skólavörðuholti og áfangar merktir H, eru kenndir á Háteigsvegi. Undantekning er að áfangar í hársnyrtiiðn merktir H eru kenndir á Skólavörðuholti.
Úrsögn úr áfanga
Ef nemandi hyggst segja sig úr áfanga þarf hann að útfylla sérstakt eyðublað á skrifstofu, eða bókasafninu á Háteigsvegi 4. hæð. Nemendur yngri en 18 ára þurfa samþykki forráðamanns fyrir úrsögn úr áfanga. Úrsögn úr áfanga getur verið háð samþykki viðkomandi skólastjóra.
Athugið! Síðasti dagur til að óska eftir úrsögn úr áfanga er 25. janúar.
Útskriftarnemendur
Nemendur sem hyggjast útskrifast í lok annar þurfa að gefa sig fram við skólastjóra sinn og skrá sig til útskriftar eigi síðar en 25. janúar.
Val fyrir næstu önn
Síðasti dagur til að ganga frá vali verður 15. mars. Nemendur eru hvattir til að mæta tímanlega í viðtalstíma umsjónarkennara síns til að ganga frá vali.
Umsjónarkennarar
Umsjónakennarar hafa vikulegan viðtalstíma sem skráðir eru á stundatöflu nemenda (UMSJÓN).
Námsráðgjafar
Námsráðgjafar eru til viðtals við nemendur um allt sem lýtur að námi þeirra, auk þess geta nemendur rætt persónuleg vandamál sín við námsráðgjafa í þeirri fullvissu að þeir eru bundnir þagnarskyldu um það sem þeim fer á milli. Innan skólans eru námsráðgjafar málsvarar nemendanna.
Námsráðgjafar Tækniskólans eru Anna Ósk Ómarsdóttir, Davíð Sch. Óskarsson og Sigurjóna Jónsdóttir.
Skrifstofur námsráðgjafanna eru í herbergi 215, 216 og 217 á Skólavörðuholti.
Skrifstofa námsráðgjafa er í herbergi 402 á 4. hæð á Háteigsvegi.
Sérkennsla
Fjölnir Ásbjörnsson tekur á móti lestrargreiningum og öðrum greiningum á námsvanda. Hann annast einnig lesgreiningar sé þess óskað.
Skólasókn
Nemendur skulu sækja allar kennslustundir í þeim áföngum sem þeir hafa valið sér og mæta stundvíslega. Ef nemandinn mætir ekki í skólann eða gerir ekki grein fyrir fjarveru sinni fyrstu kennsluvikuna, er litið svo á að hann ætli ekki að stunda nám í skólanum.
Sé nemandi fjarverandi úr kennslustund eða fjarverandi meira en 20 mínútur af kennslustund fær hann tvö fjarvistarstig. Komi nemandi of seint til kennlu fær hann eitt fjarvistarstig. Skólasóknareinkunn er gefin fyrir heildarmætingu.
Fyrir góða raunmætingu, 95-100% fær nemandi eina námseiningu sem nýtist sem hluti af frjálsu vali.
Reglulega er gerð úttekt á skólasókn nemenda.Nemendur sem reynast með 80-90% mætingu á úttektardegi fá viðvörun. Nemendur með mætingu undir 80% eru boðaðir í viðtöl til umsjónarkennara eða skólastjóra. Fari nemandi niður fyrir 80% heildarmætingu áskilur skólinn sér rétt til að vísa honum úr skóla.
Kvartanir vegna fjarvistarskráningar eiga að berast til kennara áfangans.
Vottorð vegna veikinda
Fjarvistarstig vegna veikinda er hægt að fá felld niður. Skal þá skila læknisvottorði um veikindi á skrifstofu skólans. Nemendur yngri en 18 ára geta skilað skriflegu vottorði um veikindi frá forráðamanni. Skólinn staðfestir móttöku slíkra vottorða með tölvupósti til forráðamanns. Vottorðum skal skila innan viku frá þeim degi sem nemandinn kemur aftur í skólann eftir veikindi. Ekki er tekið við vottorðum vegna fjarvista hluta úr degi.
Forvarnarfulltrúi
Forvarnarfulltrúi er til viðræðu við nemendur sem hafa áhyggjur af eigin vímefnaneyslu, vina sinna eða vandamanna. Forvarnarfulltrúi er Guðlaug Kjartansdóttir. Viðtalstími er auglýstur á heimasíðu skólans.
Félagslíf
Tækniskólinn leggur ríka áherslu á að í skólanum sé mikið og fjölbreytt félagslíf nemenda. Innan allra skóla Tækniskólans starfa félög nemenda sem saman mynda nemendasamband Tækniskólans.
Hlutverk nemendafélaganna og nemendasambandsins er að halda utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skóla og aðrar uppákomur.
Prentkort
Til að nálgast prentverk í prenturum eða til að ljósrita á fjölnotavélum þurfa nemendur að hafa auðkenniskort. Kortinu fylgja a.m.k. 100 prenteiningar, en sumar brautir fá fleiri einingar.
1 prenteining - A4 svart/hvítt
2 prenteiningar - A4 í lit og A3 svart/hvítt
4 einingar - A3 í lit
Nemendur sækja um prentkort á bókasafni skólans og greiða þar 500 kr. Þar er valið hvort sækja á kortið á bókasafni á Háteigsvegi eða Skólavörðuholti. Prentkortin eru yfirleitt tilbúin samdægurs eða daginn eftir en þau þarf að láta virkja við afhendingu.
Reykingar
Í samræmi við lög eru reykingar og notkun tóbaks bönnuð í skólanum og á lóð hans.
Tryggingar
Nemendur og munir þeirra eru ekki tryggðir sérstaklega hjá skólanum. Fjölskyldu- og heimilistryggingar nemenda bæta ýmis tjón.
Mikilvægar dagsetningar!
11. janúar - Fundur hjá umsjónarkennara kl. 11:40.
25. janúar - Síðasti dagur úrsagnar úr áfanga.
25. janúar - Síðasti dagur fyrir útskriftarnemendur að skrá sig til útskriftar hjá skólastjóra.
15. mars - Valdagur.
15. mars - Gjalddagi staðfestingargjalds.
19. apríl - Síðasti dagur til að sækja um lengri próftíma eða sérúrræði í prófum.
2. maí - Fyrsti prófdagur.
3. maí - Gjalddagi skólagjalda.
21. maí - Afhending einkunna/prófsýning.
24. maí - Útskrift.
