Skóli atvinnulífsins
Gott að vita

Kynnið ykkur viðbragðsáætlun skólans vegna hugsanlegs inflúensufaraldar.

Landlæknisembættið birtir á vef sínum ráð um það hvernig helst megi forðast inflúensusmit, en eins og allir vita er búist við að svínaflensa muni herja á landsmenn í vetur.

Fimm leiðir til að forðast flensuna:
1 Þvoðu þér um hendurnar
2 Notaðu alltaf bréfþurrkur þegar þú hóstar og hnerrar
3 Hentu notuðum bréfþurrkum beint í ruslið
4 Haltu fyrir vitin ef bréfþurrkur eru ekki til taks
5 Vertu heima ef þú færð flensu

Handþvottur og sprittun.
Rannsóknir sýna að handhreinsun skiptir miklu máli við að draga úr smiti inflúensu milli manna.
Þvoið hendur með vatni og sápu og þerrið vel á eftir eða með því að bera á þær handspritt.
Handsprittun dregur einnig úr líkum á smiti.
Hreinlæti dregur úr smitlíkum Auk handhreinsunar draga almenn þrif með sápuvatni í umhverfi smitaðra úr líkum á smiti.
• Inflúensa smitast með dropum og úða úr öndunarvegi
• Besta vörnin er hreinlæti og handþvottur skiptir þar mestu
• Sóttvarnalæknir mælist til að lyf gegn inflúensu (Tamiflu og Relenza) séu ekki tekin nema samkvæmt læknisráði.

(Upplýsingarnar eru teknar af vef Landlæknisembættisins, ágúst 2009)


Meiri upplýsingar er að finna á:
http://www.influensa.is/
http://www.landlaeknir.is/
http://www.almannavarnir.is/


 

Óskilamunir:

ÓskilamunirMikið er af óskilamunum í skólanum s.s. símar og USB lyklar.

Skrifstofurnar á Skólavörðuholti og á Háteigsvegi veita upplýsingar um óskilamuni

 

 

 

 





Tækniskólinn

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica