Láttu okkur meta fyrra nám til eininga.
Mat á námi úr öðrum skólum
Nám úr öðrum skólum er metið með einkunn, þ.e. einkunn flyst með nemandanum ef kostur er. Heimilt er að láta þess getið á prófskírteini ef nám er metið úr öðrum skólum.
1. Í Tækniskólanum er sérstök nefnd sem sér um allt mat á fyrra námi nemenda.
2. Með umsókn um skólavist skal leggja fram staðfest afrit af prófskírteini/ brautskráningu eða öðrum gögnum sem meta á, eða gefa Tækniskólanum heimild til að sækja fyrri námsferil í INNU.
3. Gjald fyrir námsmat er kr. 1.500.- .
4. Niðurstaða mats birtist í INNU.
5. Á innritunardögum í kvöldskóla er reynt að hafa mat á námi úr öðrum skólum tilbúið daginn eftir að gögn eru lögð inn.
