Forvarnarstefna

Forvarnarstefna skólans

Stefna Tækniskólans er að styðja nemendur í að setja sér skýr markmið í lífinu og vinna markvisst að því að ná þeim. Við leggjum áherslu á lífshætti sem leiða til sjálfsvirðingar, sjálfsstjórnar og árangurs. Við leggjum einnig áherslu á virðingu fyrir einstaklingunum og sérstöðu þeirra, öflugt félagslíf, góð mötuneyti og margvíslega nemendaþjónustu. Skólinn vill aðstoða þá sem hafa ánetjast vímuefnum og í skólanum gilda skýrar reglur um notkun tóbaks, áfengis og annarra vímuefna. Starf forvarnarfulltrúa eru hluti af framkvæmd þessarar stefnu.

Forvarnarfulltrúi er Guðlaug Kjartansdóttir, guk@tskoli.is, viðtalstímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:35 - 13:10 í stofu 115 Skólavörðuholti.

 

Forvarnarfulltrúi:

  • vinnur með nemendum að skipulagi vímulauss félagslífs.
  • er til viðræðu við nemendur sem hafa áhyggjur af eigin vímuefnaneyslu eða neyslu vina sinna og vandamanna.
  • stendur fyrir fræðsluerindum og námskeiðum fyrir starfsmenn og nemendur.
  • er kennurum og öðru starfsfólki skólans til ráðgjafar hafi þeir grun um vímuefnaneyslu nemenda.
  • aðstoðar þá sem eiga í vandræðum vegna áfengis eða annarra vímugjafa.

 

Þær einföldu reglur gilda í Tækniskólanum að:

  • Neysla áfengis og annarra vímuefna í skólanum og á skemmtunum á vegum hans er ekki leyfð.
  • Reykingar og önnur notkun tóbaks (munntóbak) er ekki leyfð í og við skólann.
  • Auglýsingar frá vínveitingahúsum eru bannaðar innan skólans, sem og annar áróður er hvetur til neyslu vímuefna.
  • Verði nemi uppvís að neyslu áfengis eða fíkniefna á skólaballi er honum vísað frá ballinu sé hann 18 ára eða eldri en hringt í forráðamenn sé hann yngri og þeim gert að sækja hann. Nemanda er síðan gert að mæta í viðtal hjá forvarnarfulltrúa.
  • Öllum alvarlegri málum, svo sem sölu eða milligöngu um sölu áfengis, sölu eða dreifingu ólöglegra fíkniefna, er umsvifalaust vísað til lögreglu.
  • Brot á þessum reglum geta leitt til brottvísunar úr skólanum.

 

 

 






Tungumál