Skóli atvinnulífsins
Dreifnám

Dreifnám er í boði í eftirtöldum skólum: 
Byggingatækniskólanum, Endurmenntunarskólanum, Meistaraskólanum, Skipstjórnarskólanum, Tæknimenntaskólanum, Uppplýsingatækniskólanum og Véltækniskólanum.

Dreifnám er blanda af námi á kennsluvef skólans, Námsnetinu (https://www.namsnet.is/tskoli/) og staðbundnum lotum í skólanum. Námsmat í dreifnámi er, eins og í öðru námi skólans, ýmist annareinkunn og próf á prófatíma eða símat, þ.e. mat á vinnu og árangri nemenda, jafnt og þétt, út alla önnina.

Á vefnum https://www.inna.is/Nemendur/, upplýsingakerfi framhaldsskólanna, eru allar upplýsingar um námsferil og einkunnir nemenda. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi námið og námsframvinduna umfram það sem kennarinn getur veitt, þá skaltu hafa samband við skólastjóra viðkomandi náms.

 

Áfangar í dreifnámi sjást undir viðkomandi skóla. Skólastjórar gefa nánari upplýsingar.

Byggingatækniskólinn                                                       Guðmundur Hreinsson ghr@tskoli.is

Tæknimenntaskólinn                                                         Kolbrún Kolbeinsdóttir kk@tskoli.is

Endurmenntunarskólinn - Meistaraskólinn                   Anna Vilborg Einarsdóttir ave@tskoli.is

Hönnunar og handverksskólinn                                       Sigríður Ágústsdóttir sa@tskoli.is

Raftækniskólinn                                                                  Valdemar Gísli Valdemarsson vgv@tskoli.is

Skipstjórnarskólinn                                                             Vilbergur Magni Óskarsson vmo@tskoli.is

Upplýsingatækniskólinn                                                    Bjargey Gígja Gísladóttir bgg@tskoli.is

Véltækniskólinn                                                                    Egill Guðmundsson egud@tskoli.is

 

Skrifstofa Tækniskólans er opin frá kl. 8:00 – 15:00 alla virka daga, s: 514 9000. Þar fá nemendur upplýsingar um viðtalstíma skólastjóra og almennra kennara en þessar upplýsingar er einnig að finna hér á heimasíðu skólans.

 

Aðgangsorð að INNU og kennsluvefnum, Námsnetinu

Lykilorð sækir þú með því að smella hér á Inna nemendur. Smellt er á tengilinn Gleymt lykilorð til hægri á innskráningarsíðu INNU. Kennitala slegin inn og Tækniskólinn valinn. INNA sendir sjálfkrafa notendanafn og lykilorð í tölvupósti á það netfang sem gefið var upp við innritun. Þetta lykilorð gildir bæði að Innu nemenda og Námsnetinu 

Æskilegt er að þú breytir lykilorði þínu í INNU og það lykilorð verður einnig lykilorð þitt að Námsnetinu við næstu uppfærslu. Ekki er tekið við óskum um lykilorð í tölvupósti eða síma.

 

Skipulag náms

Námsskipulag kemur fram í kennsluáætlun hvers áfanga og getur verið breytilegt frá einum áfanga til annars. Námið gengur í aðalatriðum þannig fyrir sig að farið er í gegnum áfangana í lotum sem hafa ákveðið viðfangsefni. Í upphafi hverrar lotu færð þú aðgang að kennslubréfi eða pakka sem eru leiðbeiningar um hvernig þú getur leyst verkefni sem þú átt að skila í lok lotunnar. Jafnframt færðu ábendingar um lesefni. Hver lota er oftast um 1 - 3 vikur.

Námstími - próf

Kennslutími í dreifnámi tekur mið af önn framhaldsskólans. Námsmat áfanga byggist annað hvort á verkefni og/eða lokaprófi sem haldið er á próftíma Tækniskólans.

Lokapróf eru ýmist lögð fyrir á kennsluumhverfi Tækniskólans, Námsnetinu eða á ákveðnum prófstöðum sem geta verið skólar, sýsluskrifstofur eða sendiráð sem næst heimabyggð nemandans.

Útskriftarnemendum er gefinn kostur á að þreyta úrbótapróf ef einkunn í áfanga er undir lágmarki, þ.e. 5.0. Fyrir úrbótapróf þarf að greiða 15.000 kr. á skrifstofu. Útskriftarnemandi má hafa einkunnina 4.0 í einum áfanga að því tilskildu að umframeiningar séu jafnmargar á móti. 

Mat á fyrra námi

Nemendur, sem óska eftir á fá fyrra nám úr öðrum skólum metið, verða að skila gögnum til skrifstofu skólans.

Ef nemendur óska geta þeir fengið námsferil sendan í pósti þegar innfærslu einkunna er að fullu lokið.

Skólastjórar og námsráðgjafar skólans veita upplýsingar um námframboð, námsskipulag og æskilega framvindu náms á einstökum brautum skólans.

Þriðji tölustafur áfanganúmers segir til um fjölda eininga sem hann gefur. T.d. gefur áfangi RLT102 tvær einingar en MHS103 þrjár einingar.

Nemendum Meistaraskólans ber að skila sveinsbréfi til skrifstofu skólans. Lögð er áhersla á fartölvunotkun í Meistaraskólanum og kennslan verður miðuð við að nemendur noti fartölvur í tímum og í verkefnavinnu.

Úrsögn úr áfanga

Tækniskólinn hefur þá almennu reglu að nemendur geta ekki sagt sig úr áfanga í dreifnámi eftir þriðju viku frá upphafi annar. Tækniskólinn endurgreiðir ekki námsgjöld í dreifnámi eftir að kennsla er hafin.

Fyrirvarar!

Engin leið er að segja fyrir um hvaða námsgreinar verða kenndar. Innritunargjöldin verða ekki gjaldfærð fyrr en ljóst er hvort viðkomandi áfangi fer af stað. Í undantekningartilfellum getur þurft að breyta auglýstum stundaskrám, en það verður þá gert í samráði við viðkomandi nemendur.

 

Birt með fyrirvara um breytingar                                                                                                                                       AVE 05/10





Tækniskólinn

Tungumál