|
ECDIS rafrænt sjókorta- og upplýsingakerfi
-
23/5/2013
|
|
Á námskeiðinu Rafrænt sjókorta- og upplýsingakerfi (e. Electronic Chart Display and Information Systems) er notað kerfið PL-10 frá Kongsberg. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið ARPA námskeiði.
Leiðbeinandi: Vilmundur Víðir Sigurðsson
Hefst 27. maí 2013
Lesa meira
|
|
|
|
GPS staðsetningartæki og rötun
-
23/5/2013
|
|
Á námskeiðinu er farið yfir öll helstu grunnatriði rötunar. Þátttakendur læra á áttavita, æfa sig í að lesa og vinna á kort bæði með stefnur, vegalengdir og staðsetningar. Farið er yfir allar helstu stillingar og notkunarmöguleika GPS staðsetningartækja, gögn unnin af kortum skráð í tækin og gögn á tölvutæku formi flutt í og úr tæki. Einnig verður kennt hvernig hægt er að vinna með GPS gögnin í tölvunni. Námskeiðið er tvö kvöld innandyra og ein útiæfing og hentar bæði fyrir byrjendur og þá sem vilja upprifjun í notkun á GPS staðsetningartækjum.
Leiðbeinandi: Sigurður Jónsson
Hefst 3. júní 2013
Lesa meira
|
|
|
|
Málmsuða
-
23/5/2013
|
|
Námskeiðið hentar byrjendum og einnig þeim sem eitthvað kunna og langar að rifja upp eða læra meira. Kennd er suða á stáli með pinnasuðu, mag-suðu, logsuðu og einnig er æfð silfurkveiking. Grundvallaratriði eru skýrð í fyrirlestri fyrsta kvöldið en tvö seinni kvöldin er verkleg þjálfun.
Leiðbeinandi: Guðmundur Ragnarsson
Hefst 10. júní 2013
Lesa meira
|
|
|
|
Steinaísetning - Nýtt!
-
23/5/2013
|
|
Áhugavert námskeið fyrir gullsmiði og nemendur sem eru að ljúka námi í gullsmíði.
Á námskeiðinu er eftirfarandi kennt:
- Að brýna verkfærin fyrir steinaísetningu
- Að setja steina með speglum í kring
- „Forrivning" aðferð kynnt með loftverkfærum
- Micropavé
- Hvernig á að stilla og nota smásjá
Fyrir þá sem hafa kunnáttu í ofangreindu er hægt að fara út í flóknari steinaísetningu.
Leiðbeinandi: Eggert Hannah
Hefst 12. ágúst 2013
Lesa meira
|
|
|
|
Taulitun og tauþrykk
-
23/5/2013
|
|
Á námskeiðinu eru kenndar ýmsar aðferðir við að lita og þrykkja efni. Kennt er að lita í plastpokum og í bölum. Litaðar eru mismunandi gerðir af efnum og einnig notaðar ýmsar aðferðir til að fá efnið mislitt og með mismunandi áferðum Farið er yfir stimplaþrykk, þrykk í gegnum ramma og hvernig er hægt að mála efni, spreyja og æta burt liti.
Leiðbeinandi: Auður Reynisdóttir
Hefst laugardaginn 21. september 2013
Lesa meira
|
|
|
|
Teikning fyrir byrjendur og lengra komna
-
23/5/2013
|
|
Á námskeiðinu er áhersla lögð á grunnþætti teikningar, form, hlutföll og skyggingu. Gott námskeið fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir málun í vatnslitamálun eða í olíumálun.
Leiðbeinandi: Bryndís Guðrún Björgvinsdóttir
Hefst 9. september 2013
Lesa meira
|
|
|
|
Smáskipanámskeið 12 m fjarnám
-
23/5/2013
|
|
Réttindin miðast við skip 12 m og styttri að skráningarlengd.
Leiðbeinandi: Kjartan Örn Kjartansson o.fl.
Hófst 13. maí 2013 - umsóknarfrestur er til 24/6
Lesa meira
|
|
|
|
Skemmtibátanámskeið fjarnám
-
14/5/2013
|
|
Kennd eru bókleg atriði, sem krafist er skv. námskrá til skemmtibátaprófs, í siglingafræði, siglingareglum og stöðugleika.Veitir réttindi á að stjórna skemmtibát styttri en 24 metrar.
Kennari: Kjartan Örn Kjartansson
Hófst 13. maí 2013 - umsóknarfrestur er til 24/6
Lesa meira
|
|
|
|
Gjafabréf
-
14/5/2012
|
|
Gjafabréf Endurmenntunarskólans er hagnýt og skemmtileg gjöf fyrir fólk á öllum aldri. Gjafabréfið getur hljóðað upp á ákveðið námskeið eða upphæð að eigin vali sem hægt er að nota sem innborgun á námskeið.
Lesa meira
|
|
|
|