ALSIM flugaðferðaþjálfi
FNPT II MCC
Alsim
Snemma árs 2002, var ákveðið af stjórn Flugskóla Íslands að leita að flugaðferðarþjálfa sem nota mætti samkvæmt hinum nýju samevrópsku reglugerðum JAA til blindflugsþjálfunar og þjálfunar í áhafnasamstarfi. Eftir nokkra yfirlegu var ákveðið að leita til samninga við fyrirtækið Alsim, en það fyrirtæki er ungt að árum og er að feta sig áfram í framleiðslu á flugaðferðarþjálfum sem uppfylla alla staðla JAA og FAA. Flugaðferðarþjálfinn er varð fyrir valinu heitir Alsim AL 200-MCC og má nota til blindflugsþjálfunar og þjálfunar í áhafnasamstarfi (MCC). Auk þess má nota hann til að framlengja blindflugsáritun flugmanna með prófdómara Flugmálastjórnar Íslands og til að auka færni og viðbrögð flugmanna við aflmissi og aðra neyðarþætti á fjölhreyfla flugvél.
Á vormánuðum 2012 var flughermirinn endurnýjaður og uppfærður í Alsim ALX útgáfu sem tilheyrir sama flokki flugaðferðaþjálfa. Flughermirinn er mjög svo fullkominn og býður upp á nýjustu tækni í þesskonar flughermum er hægt að velja allt frá einföldustu einshreyfils flugvélum upp í miðlungsstórar þotur við þjálfun flugmanna.
Fyrirtækið og tæknin
Alsim er staðsett í NANTES í Frakklandi og var stofnað af atvinnuflugmanni og hugbúnaðarsérfræðingi. Hugmynd þeirra hófst á hönnun sýndarmælitækja er hefðu fullkomna upplausn og hreyfingar á tölvuskjá, án þess þó að flugmenn missi raunveruleikatilfinningu fyrir mælitækjum. Eftir það víkkuðu þeir svið fyrirtækisins út í að framleiða umhverfi flugaðferðarþjálfa sem nýtti það bil sem var milli tölvuflugherma og hinna fullkomnu flugherma sem flugfélög nota. Með þeim hætti gátu þeir framleitt tæki sem gat líkt eftir afkastagetu og hegðun hinna ýmissa flugvélategunda. Því er hægt að líkja eftir á mjög raunverulegan hátt afkastagetu og hegðun hinna ýmissa flugvélategunda. Einfaldleikinn gerir einnig það að verkum að auðvelt er að uppfæra gagnagrunn í gegnum tölvusamskipti frá útlöndum er varðar flugvélategundir, flugvelli, umhverfi og leiðsöguvirki. Einnig hafa þeir hannað innra gæðastýringakerfi er uppfyllir allar kröfur JAA og FAA um eftirlit til slíkra tækja af notendum og flugmálastjórnum þeirra landa þar sem hann er samþykktur í.
Samþykktarferli
Alsim AL-200 MCC flugaðferðarþjálfinn kom til landsins á haustmánuðum 2002 og var strax byrjaður undirbúningur að staðsetningu hans og aðstöðu, er lauk síðla árs 2002. Þá hófst sú vinna að fá Flugmálastjórn Íslands til að framkvæma úttekt til samþykktar á flugaðferðarþjálfanum og lauk því lok mars 2003 er flugaðferðarþjálfinn hlaut samþykki hans til kennslu í áhafnasamstarfi (MCC). Í byrjun maí 2003 hlaut síðan Flugskóli Íslands hf. lokasamþykki Flugmálastjórnar Íslands til blindflugskennslu í flugaðferðarþjálfanum.
Flugmálastjórn Íslands samþykkti Alsim ALX flugaðferðarþjálfann stuttu eftir uppsetningu hans í apríl 2012 og hægt er að stunda kennslu á nokkrar mismunandi flugvélartegundir í flugaðferðarþjálfanum.
Þjálfun
Samkvæmt kennsluleyfi Flugskóla Íslands hf. munu tímar í flugaðferðarþjálfanum nýtast á öllum stigum þjálfunar þ.e. í einka-, atvinnu-, blindflugs-, fjölhreyfla- og áhafnasamstarfsþjálfun. Tímar sem teknir eru í flugaðferðarþjálfanum eru kenndir af starfandi atvinnuflugmönnum frá öllum stærri flugrekendum á Íslandi og má þar nefna Icelandair, Atlanta, Flugfélagi Íslands og Norlandair. Þeir eru allir skráðir flugkennarar hjá Flugskóla Íslands hf. og hafa starfað í áraraðir við flugkennslu á Íslandi. Tímar sem teknir eru í flugaðferðarþjálfanum nýtast til þjálfunar samkvæmt JAR FCL 1 skírteinareglugerð sem hér segir;
PPL (A): 5 klst.
CPL (A): 5 klst.
IR (A) SEP: 35 klst.
IR (A) MEP: 40 klst.
IR (A) SEP til MEP: 3 klst.
MCC: 20 klst.

