Flugskóli Íslands
Flugskóli Íslands ehf. var stofnaður sumarið 1998. Markmið Flugskóla Íslands ehf. hefur frá upphafi verið að kenna, samkvæmt Evrópureglum JAA og síðar EASA, flug frá grunni til atvinnuflugmannsréttinda ásamt því að sjá um endurmenntun flugmanna. Til að uppfylla þessi skilyrði, sem eru mjög ströng, þarf skólinn að fylgja þessum reglum í hvívetna og miða allar handbækur skólans og vinnureglur að því. Flugmálastjórn veitir skólanum kennsluleyfi að þessum skilyrðum uppfylltum. Flugmálastjórn annast síðan eftirlit með yfirferð handbóka, úttektir ásamt reglulegum úttektum frá úttektarteymi JAA. Ástæða þessa er að skírteini útgefin af Flugmálastjórn eru fullgild í á fjórða tug landa ólíkt því sem áður var.
Flugskóli Íslands ehf. sér einnig um umtalsverða kennslu flugmanna fyrir íslensku flugfélögin bæði til tegundarréttinda s.s. Dornier 228 og 328, Boeing B-737/747/757/767 og Airbus 310/300-600 auk ýmis konar sérnámskeiða. Til þess að gera þetta mögulegt hefur skólinn meðal annars gert samning við Lufthansa Flight Training um útvegun kennsluefnis. Þetta efni nýtist skólanum einnig vel við almenna flugkennslu. Íslensku flugfélögin eru traustur bakhjarl skólans og þaðan koma margir kennarar sem kenna bæði bóklega og verklega kennslu við skólann.
Flugskóli Íslands hf. tók nýjan og fullkominn ALSIM flugaðferðaþjálfa í notkun í byrjun ársins 2003. Þetta var liður í því að uppfylla JAA reglur þannig er nú hægt að ljúka öllu almennu flugnámi hérlendis.
Í lok árs 2006 eignaðist Íslenska Menntafélagið ehf. Flugskóla Íslands ehf. en það félag er í eigu Fjöltækniskóla Íslands hf. Þar með er Flugskóli Íslands ehf. hluti af Fjöltækniskóla Íslands ehf. Þetta hefur haft þær breytingar í för með sér að báðir skólarnir starfa nú undir sama þaki í Sjómannaskólanum við Háteigsveg. Þar fer fram öll bókleg kennsla auk þess sem skrifstofur skólans eru þar til húsa. Þetta styrkir Flugskóla Íslands hf. verulega og öll aðstaða nú mun betri bæði fyrir nemendur í bóklega náminu og starfsmenn. Þar eru fleiri kennslustofur, bókasafn, lesaðstaða fyrir nemendur auk mötuneytis.
Verklega kennslan fer fram á Reykjavíkurflugvelli þar sem öll aðstaða er eins og best verður á kosið bæði fyrir kennara og nemendur. Flugflotinn hefur verið endurnýjaður að miklu leyti með tilkomu nýrra Cessna 172SP véla, sem allar eru 4ra sæta. Flugvélar þessar eru af nýrri kynslóð kennsluflugvéla frá Cessna verksmiðjunum. Þær eru allar búnar 180 hp hreyfli og verulegar endurbætur hafa verið gerðar frá eldri kennsluvélum. Ennfremur hefur skólinn yfir að ráða Piper Seminole tveggja hreyfla kennsluflugvélum auk C-152 einshreyfils kennsluflugvéla.
Flugskóli Íslands ehf starfrækir einnig flugklúbb sem ætlaður er þeim nemendum og viðskiptavinum skólans sem hafa amk. einkaflugmannsréttindi og vilja hafa aðgang að flugvélum til tímasöfnunar eða til skemmtunar á lægra verði. Klúbburinn hefur til umráða bæði 2ja og 4ra sæta en þær eru eingöngu fyrir klúbbmeðlimi og eru ekki notaðar til flugkennslu.
Það er von okkar að sem flestir sem áhuga hafa á flugi og flugnámi komi til Flugskóla Íslands hf, kynni sér hvað skólinn hefur upp á að bjóða og láti drauminn um flugnám rætast.

