Næturflugsáritun
Frá yfirkennara
Yfirflugkennari vill minna alla flugnema á að öðlast næturflugsáritun hið fyrsta, sér í lagi þá er hyggja á að fá blindflugsáritun eða atvinnuflugmannsskírteini.
Núna er að byrja sá tími árs sem hentugt er að öðlast næturflugsáritun. Vegna krafna í reglugerð um skírteini, þurfa þeir nemar sem hafa hug á því að öðlast blindflugsáritun og atvinnuflugmannsskírteini, að verða sér úti um þá þjálfun sem þarf til að fá næturflugsáritun í einkaflugmannsskírteini sitt.
Eftirfarandi er samantekt fyrir nemendur úr reglugerð um skírteini JAR FCL 1;
Væntanlegir blindflugsnemar
- Samkvæmt reglugerð um skírteini JAR FCL 1.190 þarf umsækjandi að vera handhafi PPL(A) eða CPL(A) skírteinis með næturflugsáritun, auk 50 landflugsfartíma sem flugstjóri.
Væntanlegir atvinnuflugmannsnemar
- Samkvæmt reglugerð um skírteini JAR FCL 1.165 þarf umsækjandi að vera handhafi PPL(A) skírteinis með næturflugsáritun, auk 200 fartíma á flugvélum skráðum eða samþykktum af aðilarríki JAA.
Næturflugsnám er framkvæmt af tilskyldum flugkennara sem til þess hefur réttindi, þ.e. flugkennari sem hefur leyfi til næturflugskennslu.
Næturflugsþjálfun er sem hér segir;
5 klst heildar flugtími í næturflugi en af þeim eru;
- 3 klst með flugkennara, en af því er 1 klst í yfirlandsflug með flugkennara.
- 2 klst í einliðaflugi
Eftir að þjálfun er lokið er áritun staðfest með færslu í flugtímabók af flugkennara Flugskóla sem hefur réttindi til næturflugskennslu og sá um flugkennsluna.
Áritun færist svo í skírteini af skírteinadeild Flugmálastjórnar og má flugmaður þá fyrst neyta réttindanna.

