Enskupróf ICAO Level 4
Reglugerð um skírteini JAR FCL 1.010
Í ljósi þess að aðlögunartímabil Flugmálastjórnar Íslands um enskukunnáttu fyrir atvinnuflugmenn og flugumferðarstjóra er að renna út, en slíkt leyfi var veitt tímabundið af Flugmálastjórn Íslands, hefur Flugskóli Íslands aflað sér leyfis Flugmálayfirvalda til að gera slíkar prófanir.
Samkvæmt ákvæðum í reglugerð um skírteini JAR FCL 1 skulu umsækjendur um skírteini og handhafar skírteina sem þurfa að nota talstöðvar sýna fram á kunnáttu í að tala og skilja það tungumál sem notað er í talfjarskiptum í samræmi við 1. viðbæti við JAR– FCL 1.010. Tungumálakunnátta skal a.m.k. vera á starfrækslustigi 4 samkvæmt 1. viðauka Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO).
Þetta þýðir það, að hver sá sem ætlar að sækja um skírteini til atvinnuflugmanns eða skírteini flugumferðarstjóra þarf að ná að minnsta kosti stig 4 í ensku til að geta starfað í faginu.
Stigin fyrir atvinnuflugmenn og flugumferðarstjóra eru frá 4- 6.
- Stig 4 - Gildistími enskumats er 3 ár.
- Stig 5 - Gildistími enskumats er 6 ár.
- Stig 6 - Gildistími enskumats er óendanlegt.
Prófið samanstendur af eftirfarandi atriðum;
- General conversation - Almenn samræða.
- Assessment of interaction and comprehension - Mat á meðvirkni og skilningi.
- Description of a situation seen on a photograph - Lýsing á aðstæðum séð á mynd.
- Discussion based on a aviation related chart/map - Samræður byggðar á flugtengdum kortum.
- Discussion based on weather information (METAR) - Samræður byggðar á veðurupplýsingum.
Prófdómarar eru tveir, sem öðlast hafa til þess réttindi hjá flugmálayfirvöldum. Einn flugmaður og einn enskukennari.
Tekið er á móti umsóknum um próftöku, með því að senda rafpóst á Hönnu Maríu - hanna(hja)flugskoli.is sem hefur yfirumsjón með skráningu. Haft verður samband við skráða aðila um nánari tímasetningu. Áætlað er að hafa 2 daga í hverjum mánuði, eða eftir því sem þurfa þykir hverju sinni.

