Skóli atvinnulífsins
Prófreglur

Prófreglur Flugskóla Íslands


 

Almennt


Próftöflu er að jafnaði lögð fram eigi síðar en mánuði fyrir próftímabil.

Vægi skólaprófa af lokaeinkunn er sem hér segir ;
  • Progress 1 - Stöðupróf  er  5%
  • Progress 2 - Stöðupróf  er 15% 
  • Lokapróf skólans er  80 %

Mæting og undirbúningur


  • Próftaki má ekki mæta til prófs eftir að próf hefst.
  • Próftaki skal hafa gilt skilríki með mynd aðgengileg fyrir prófgæslufólk, og framvísa við afhendingu prófgagna.
  • Geyma skal yfirhafnir fremst í prófstofu eða á gólfinu við hlið próftaka, eftir því sem aðstæður leyfa.
  • Próftaka er EKKI heimilt að hafa með sér farsíma eða annan raftækjabúnað í prófstofu og skal hann afhentur prófgæslumanni meðan á prófi stendur.
  • Próftaka er lagt til reiknivél frá skólanum til notkunar í prófi.  Próftaka er óheimilt að nota sína reiknivél, nema með fyrirfram samþykki prófgæslumanns og ber þá próftaka að framvísa reikninvélinni til hans fyrir próf til skoðunar.

Próftími

  • Í upphafi prófs skulu nemendur ganga úr skugga um:
  1. að prófgögn þeirra séu rétt.
  2. að á borðum þeirra séu aðeins þau hjálpargögn sem tilgreind eru á forsíðu prófblaðs.
  3. pennaveski eða aðrir hlutir sem ekki eru tilteknir eru á prófblaðinu eru á gólfi við hlið próftaka.
  4. að yfirhafnir liggi á gólfi við hlið próftaka.
  • Próftaki skal skila öllum blöðum sem honum eru afhent í prófinu.
  • Ekki er heimilt að afrita próf með einum eða öðrum hætti, hvorki á prófi né á prófsýningardegi.
  • Ef próftaki er staðinn að misferli í prófi eða afritun prófs, skal vísa honum frá prófi og getur hann átt von á brottvikningu úr skóla, tímabundið eða til frambúðar, eftir alvarleika brots.

Ýmislegt

  • Á prófsýningardegi geta próftaki skoðað úrlausnir sínar hjá prófstjóra.
    • Ekki er heimilt að afrita próf með einum eða öðrum hætti á prófsýningardegi.
    • Ef próftaki er staðinn að misferli á prófsýningarrdegi eða afritun prófs, skal vísa honum frá prófi og getur hann átt von á brottvikningu úr skóla, tímabundið eða til frambúðar, eftir alvarleika brots.
  • Veikindi í prófi:
    1. Próftaki, sem veikist og getur þar af leiðandi ekki þreytt próf, ber að tilkynna um veikindi sín samdægurs til skrifstofu skólans og skila þangað læknisvottorði innan þriggja virkra daga.
    2. Veikist próftaki í prófi ber honum að vekja athygli prófgæslumanns sem skrifar athugasemd um það á prófúrlausn nemandans.
    3. Læknisvottorði, dagsettu, skal skilað samdægurs til skrifstofu skólans.


 

Flýtival í haus



Þetta vefsvæði byggir á Eplica