Skóli atvinnulífsins
Flugvirkjanám

B.1.1 flugvirkjanám

Flugvirkjanám samkvæmt EASA Part 66, B 1-1 Fullt réttindanám

FlugvirkiFlugvirkiFlugskóli Íslands hefur hafið samstarf við Lufthansa Resource Techincal Training - LRTT, sem er viðurkenndur Part 147 þjálfunaraðili í Bretlandi, til náms við útgáfu flugvirkjaréttinda samkvæmt stöðlum EASA Part 66.

Þjálfunarnám sem boðið verður upp á, er fullt B 1-1 réttindanám til sveinsprófs flugvirkja með áritun til viðhalds á flugvélu útbúnum túrbínum.

Inntökuskilyrði

  • Lágmarksaldur - 18 ára.
  • Hafa lokið grunnskóla með fullnægjandi hætti.
  • Góða kunnáttu í ensku, rit- og talmáli.
  • Kunnáttu í stærðfræði og eðlisfræði.
  • Hreint sakavottorð

Fjármögnun náms

Nám þetta er lánshæft hjá LÍN.

Námsupplýsingar

Námið hefst 3. september 2012Öll kennsla fer fram á ensku.

Umsóknarfrestur fyrir septemberbekkinn var til 1.mars 2012.

Mikil áhersla er lögð á mætingu!

Kennt alla virka daga frá 08:00 - 17:00 í staðbundnu námi (bekkjarkerfi). Kennt verður í 3 fösum.

  • Fasi 1 - Bóklegt nám           3.sept 2012 - 31.maí 2013.
  • Fasi 2 - Verklegt nám          1. júlí 2013 - 31.jan 2014.
  • Fasi 3 - Verkstæðisnám      Áætlað 3. feb - 28.mars 2014.

Námið er fullt 2400 klst. nám sem veitir nemanda að því loknu heimild til að komast í starfsnám hjá samþykktum og viðurkenndum Part 145 viðhaldsaðila sem flugvirkjanemi ( NB. Ekki innifalið í námskeiði ).


Í boði eru 24 sæti í náminu. 

Heildarverð námskeiðs er 3.600.000 kr.

Innifalið í námsgjöldum eru öll kennsla, efni og kennslugögn.


Úrvinnsla umsókna í septemberbekkinn er í gangi og verða nemendum tilkynnt í lok mánaðar hvort þeir komust í bekkinn.




Nýtt:


Til þess að auðvelda byrjunina í náminu verður í boði flugenskunámskeið fyrir þá sem þurfa upprifjun og þjálfun í ensku. Námskeiðið  verður kennt  í fjarnámi og jafnvel í staðbundnum lotum.  (Auglýst síðar).



 

Flýtival í haus



Þetta vefsvæði byggir á Eplica