Skóli atvinnulífsins
Flugkennari

Flugkennaraáritun, FI(A)

 Flugkennaranámið er heilstætt námskeið, sem skiptist í tvo hluta, bóklegan og verklegan.  Námskeiðið verður að vera skipulagt og framkvæmt af sama þjálfunaraðila (skóla) og klárast innan 6 mánaða frá upphafi námskeiðs.

 Inntökukröfur:

  • Bóklegt ATPL(A) námskeið eða CPL(A) og IR(A) námskeið.
  • Hafa staðist verklegt fluginntökupróf hjá Flugskóla Íslands, með tilskipuðum flugkennara.
  • Heildarfartími 200 klst, þar af
    • 100 fartímar sem flugstjóri (PIC), ef umsækjandi er handhafi CPL(A) eða ATPL(A) eða;
    • 150 fartímar sem flugstjóri (PIC), ef umsækjandi er handhafi PPL(A).
  • 30 fartímar á einshreyfils flugvélum með bulluhreyfli (SEP) , þar af 5 fartíma á síðustu sex mánuðum fyrir inntökuflugprófið.
  • 10 fartímar fengnir í blindflugskennslu, þar af mega vera 5 klst í flugaðferðarþjálfa (FNPT) eða flughermi.
  • 20 fartímar í landflugi sem flugstjóri (PIC),  þar af eitt 300 sjómílna flug með tveimur stöðvunarlendingum á mismunandi flugvöllum.

Reglugerðarákvæði

Námið er heildstætt nám, sem hefst við bóklegt nám og lýkur við próftöku hjá Flugmálayfirvöldum.  Námi skal vera lokið innan við 6 mánuði frá upphafi.

Bóklegur hluti: Þar eru kennd helstu atriði kennslufræðinnar og hvernig þau koma heim og saman við flug. Þá er sérstaklega farið í einstaklingskennslu. Einnig eru kennd þau atriði sálfræðinnar sem lúta að kennslu. Nemendur fá í seinni hluta námsins að spreyta sig í æfingakennslu með fyrirlestrum. Kennt er öll virk kvöld frá 1730 til 2200.  Kennslan er um 128 klst.

 

Verklegur hluti:  Samanstendur af 25 flugtímum þar sem nemandinn er einn í kennslu með kennara og 5 tímum þar sem að nemandinn er í kennslu saman með öðrum FI(A) nema. Því eru einungis 27,5 tímar innifaldir í námskeiðsverðinu. Kennt er á C-152.

Fluginntökuprófið og hæfniprófið eru ekki innifalin í verðinu.

Namskeid



 

Flýtival í haus



Þetta vefsvæði byggir á Eplica