Skóli atvinnulífsins
Grunnnámskeið flugfreyju og flugþjóna

Grunnnámskeið flugfreyju / flugþjóna

Grunnnámskeið fyrir flugfreyju/-þjóna námskeið, sem hannað er samkvæmt stöðlum  Evrópubandalagsins, Flugöryggisstofnun Evrópu og Reglugerðar um flutningaflug EU OPS O-kafla 1.1005, miðar að því að gera nemendur færa til að starfa um borð í loftfari sem þjónustuliði að námi loknu.

Við útskrift öðlast nemandinn útskriftarskjal, "Attestation of Cabin Crew Initital Safety Training", sem staðfestir grunnnám til starfa flugfreyju/-þjóna og skal notast við umsókn að starfi hjá evrópskum flugfélögum og flugrekendum sem starfa eftir ákvæðum European Aviation Safety Administration - EASA.

Tegundarþjálfun miðast við algengustu tegundir flugvéla sem notuð eru af íslenskum flugrekendum í dag.

Inntökuskilyrði

  • Lágmarksaldur 20 ára.
  • Hafa lokið a.m.k tveggja ára námi í framhaldsskóla,
  • Hafa gott vald á ensku og einu norðurlandatungumáli.
  • Þriðja tungumálið æskilegt.
  • Standast enskupróf sem sett er áður en námskeið hefst.
  • Viðtal við fagstjórnanda náms fyrir námskeið.
  • Afrit af námsgögnum og vegabréfi til staðfestingar verður að berast skrifstofu skólans fyrir námskeið.

Námslýsing

Grunnnámið er 7 vikur að lengd, kennt á kvöldin (17:30- 22:00 á virkum dögum) og innifelur m.a. í sér eftirfarandi fög:

  • Kynning á starfi flugfreyju/-þjóna og flugsögu Íslands.
  • Mannleg geta, agi og hlutverk starfsins.
  • Farþegaþjónusta og meðhöndlun á farþega
  • Þjálfun til að þekkja og beita réttum viðbrögðum við flutningi hættulegra efna.
  • Öryggisþjálfun
  • Heilbrigðisfræði og skyndihjálp, lyfjanotkun
  • Sjálfsbjargartækni í náttúrunni (eyðimörkum, fjöllum og "köldum svæðum")
  • Notkun björgunarbáta, búnaðar þess og sjálfsbjargartækni á vatni/úthafi.
  • Áhafnasamstarf og hin mannlegi þáttur í samskiptum.
  • Viðbrögð og æfing slökkvistarfs í reyk og eld.
  • Samskipti við fyrirtæki og kynning á handbókum
  • Prófanir og viðhald réttinda samkvæmt reglum.
  • Kynning á flugvél, stjórnklefa og búnaðar flugvélar.
  • Farþegaávarp og kynning á neyðarrýmingu.
  • Meðhöndlun og starfræksla á hurðum og neyðarútgönguleiðum.
  • Meðhöndlun og starfræksla á neyðarbúnaði um borð í loftfari.
  • Neyðarrýming loftfars og viðbrögð við önnur neyðartilfelli.
  • Stjórnun fólks við neyðarrýmingu.
  • Notkun neyðarrennu og æfing á rýmingu í neyðarrennum.
  • Vibrögð við meðvitundarleysi flugmanna.

Namskeid




 

Flýtival í haus



Þetta vefsvæði byggir á Eplica