Einkaflugmaður
![]()
Einkaflugmannsskírteini, PPL(A)
Réttindi
Einkaflugmannsskírteini veitir réttindi til þess að fljúga með vini og vandamenn hvert á land sem er við sjónflugsskilyrði án endurgjalds. Einkaflugmaður sem hlotið hefur til þess þjálfun tilnefnds flugkennara, getur aflað sér aukinna réttinda í einkaflugmannsskírteinið s.s. fjölhreyflaréttindi, blindflugsréttindi, næturflugsréttindi og önnur réttindi. Þar má meðal annars minnast á ; stélhjólsréttindi, flugvélar með túrbínu, flugvélar með skiptiskrúfu, flugvélar með uppdraganlegan hjólabúnað og flugvélar með loftþrýstibúnað. Einkaflugmaður sem ætlar sér að fljúga afbrigðum af eins-eða fjölhreyflaflugvélum ber að afla sér mismunaþjálfunar á viðeigandi flugvél hjá flugkennara sem hefur til þess réttindi.
Inntökuskilyrði Flugskóla Íslands:
Lágmarksaldur: 16 ára.
Ef umsækjandi er ekki fjárráða eða fullráða samkvæmt íslenskum lögum (18 ára), ber honum að fá skriflegt samþykki forráðamanna fyrir náminu.
Sakavottorð: Hreina sakaskrá
Heilbrigðiskröfur: Nemandi þarf að hafa 1. eða 2. flokks heilbrigðisvottorð fluglækna til útgáfu einkaflugmannsskírteinis (Class 2 Medical).
Áður en flugnám er hafið mælum við með því að nemendur farir í læknisskoðun. Til þess að panta læknisskoðun skal hafa samband við Fluglækningastofnun S.5516900. Kostnaður vegna class 2 heilbrigðisvottorðs er 7500 kr. án hjartalínurits og 9500 kr. með hjartalínuriti, fyrsta skoðun er alltaf með hjartalínuriti. Fyrir class 1 heilbrigðisvottorð þarf aftur á móti að fara í 6 mismunandi skoðanir. Augnskoðun 3900 kr., fluglæknar 7500 kr. Aðrar skoðanir eru hjá LSP og höfum við ekki verðskrá yfir þær.
Hafa gott vald á íslenskri og/eða enskri tungu
Bóklegur hluti:
Kvöldnámskeið: Er 210-220 kennslustundir að lengd. Kennt er frá kl 18:30 til kl 21:50 alla virka daga og stendur í um 10-12 vikur með prófum. Til þess að sitja bóklega námskeiðið þarf nemandi að vera orðinn 16 ára. Bóklegi hlutinn er metinn til u.þ.b. 16 eininga í framhaldsskóla.
Hraðnámskeið: Er 210-220 kennslustundir að lengd, kennt frá kl 16:30 til 22:00 alla virka daga og stendur í um 7-8 vikur með prófum. Til þess að sitja bóklega námskeiðið þarf nemandi að vera orðinn 16 ára. Bóklegi hlutinn er metinn til 16 eininga í framhaldsskóla, samkvæmt námskrá skólans.
Fögin fyrir bóklegt einkaflugmannspróf eru: Flugveðurfræði, Flugreglur, Flugfræði, Mannleg geta og takmörk hennar, Almenn þekking á loftförum, Flugleiðsaga, Verklagsreglur í flugi, Flugfjarskipti, Afkastageta og áætlanagerð.
Verklegur hluti: Ljúka þarf að lágmarki 45 fartímum í flugvél, þar af minnst 25 tímum með kennara og minnst 10 einflugstímum. Einnig þarf að ljúka 5 einflugstímum í yfirlandsflugi með einu yfirlandsflugi sem nemur 270 km og gera þá að minnsta kosti tvær stöðvunarlendingar á tveimur flugvöllum öðrum en brottfararflugvelli.
Verklegi hlutinn er metinn til 7 eininga í framhaldsskóla, samkvæmt námskrá skólans.
Í lok náms þarf að standast verklegt færnipróf hjá Flugmálastjórn Íslands.


