Skóli atvinnulífsins
Áhafnasamstarf MCC

Áhafnasamstarf, MCC

Til að flugmaður geti starfað af öryggi í flugvél sem þarfnast tveggja flugmanna(fjölstjórnarflugvél) þarf hann að læra nýjar venjur og nýjar reglur. Starfsreglur um borð í slíkum vélum eru ólíkar því sem menn hafa vanist í flugvélum sem einungis krefjast eins flugmanns. Þetta námskeið er hannað til að undirbúa flugmenn fyrir þessa breytingu á starfsumhverfi þeirra. Námskeiðið snýst um að læra undirstöðu samstarfsins: Sameiginlega ákvarðanatöku, samskipti, verkaskiptingu, notkun gátlista, gangvirkt eftirlit, og stuðning í gegnum alla þætti flugsins undir venjulegum og óvenjulegum aðstæðum sem og í neyðartilvikum. Þetta eru þættir sem eru yfirleitt ekki hluti af tegundaáritunum fjölstjórnarflugvéla og er námskeið í áhafnasamstarfi skylda áður en menn fá að sækja slíka þjálfun.  Ekki er gerð krafa um MCC þjálfun fyrir nemendur sem stunda áfanganám (eins og við Flugskóla Íslands).

Námskröfur: Á námskeiði í MCC skal vera minnst 25 tíma kennsla og æfingar í bóklegum greinum og 20 tíma þjálfun í áhafnasamstarfi. Nota skal flugleiðsöguþjálfa II (FNPT II) eða flughermi. Flugskóli Íslands hefur tekið í notkun glænýjan franskan ALSIM 200 MCC FNPT II flughermi. Áður kenndi Flugskóli Íslands bóklega hlutann á Íslandi en verklega hlutann í Danmörku á King Air 200 FNPT II. Með tilkomu nýja flughermisins er MCC alfarið kennt á Íslandi.

Inntökukröfur: Vera handhafi atvinnuflugmannsskírteinis CPL(A) og með gilda blindflugsáritun fyrir fjölhreyfla flugvél.

Kennt er bóklegt í 5 daga (mánudag til föstudags) frá 1700-2200 og síðan tekur verklegi hlutinn við (5 x 4.0 klst. í Al-Sim 200).

Innifalið: 25 klst. bókleg kennsla, 20 klst. verkleg kennsla í Al-Sim 200 og námsefni.

Namskeid



 

Flýtival í haus



Þetta vefsvæði byggir á Eplica