Skráning á námskeið
Skilmálar og gjaldtaka
Umsækjandi gengst við neðangreindum skilmálum við skráningu á námskeið Flugskóla Íslands.Staðfestingargjald námskeiðs
Staðfestingargjald námskeiðs er gjald sem Flugskóli Íslands innheimtir samstundis og gengur upp í námskeiðsgjald.
Staðfestingargjald námskeiðs er óendurkræfanlegt við skráningu á námskeið hjá Flugskóla Íslands.
Flugskóli Íslands áskilur sér rétt til að fella niður námskeið, ef ekki næst nægilegur lágmarksfjöldi á námskeið. Undir þeim kringumstæðum mun Flugskóli Íslands endurgreiða staðfestingargjald, sem er að öðrum kosti óendurkræfanlegt.
Almennur skilmáli námskeiða
Flugskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna umsækjanda að námskeiði, ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði fyrir setu á námskeiðinu samkvæmt lýsingum á inntökuskilyrðum á heimasíðu skólans. Við slíkri höfnun mun Flugskóli Íslands halda eftir staðfestingargjald námskeiðs, enda óendurkræfanlegur hluti námskeiðs, sem rennur upp í kostnað námskeiðshaldsins.
UMSÆKJENDUR ERU ÞVÍ SAMÞYKKIR ÞESSUM SKILMÁLUM VIÐ SKRÁNINGU Á NÁMSKEIÐ.
*Staðfestingargjald fæst einungis endurgreitt ef Flugskólinn þarf að fella niður námskeið.
*Staðfestingargjald fyrir flugvirkjanám er 100.000 kr. Nemendur sem komast í bekkinn fá sendan gíróseðil 15.mars. Ef gíróseðill er ekki greiddur 1.apríl er litið svo á að viðkomandi er hættur við námið. Þá fær nemandi á biðlista pláss þess nemanda sem greiðir ekki gíróseðilinn.

