Skóli atvinnulífsins
Læknisskoðun

Læknisskoðun

Læknisskoðun fer fram hjá skráðum fluglækni sem hlotið hefur þjálfun og hefur leyfi Flugmálastjórnar Íslands til þess.  Öflun heilbrigðisvottorðs er ein af skyldum skírteinishafa til að öðlast og viðhalda viðeigandi skírteini sín, en fluglæknar fara eftir JAR FCL 3 reglugerð þar af lútandi.  Heilbrigðisvottorð hafa mismunandi gildistíma, en hann fer eftir tegund vottorðs og aldri viðkomandi einstaklings.  Umsækjandi um heilbrigðisvottorð sem gefin er út samkvæmt reglugerð um skírteini JAR FCL 1, gangast undir læknisskoðun þar sem styðst er við kröfur um m.a. eftirfarandi atriði;

         a)  Líkamshreysti og andlegt heilbrigði.

        b)  Sjón- og litaskynjun.

        c)  Heyrn.

        d)  Hjartastarfsemi.

Fluglæknar

Fluglæknar eru læknar er hafa til þess sérstakt leyfi Flugmálastjórnar Íslands til að starfa við og veita heilbrigðisvottorð til útgáfu skírteina Flugmálastjórnar.

Flugnemar

Þeir flugnemar sem hefja nám, verða að vera komnir með læknisvottorð áður en farið er fyrsta einliðaflug (sólóflug) og því mælist Flugskóli Íslands að allir sem hafa tekið kynningartíma og huga á áframhaldandi nám nái sér í læknisvottorð hið fyrsta.  Það getur hjálpað þeim einstaklingi til að taka ákvörðun um áframhaldandi nám. Flugnemar skulu ávalt hafa þetta læknisvottorð með sér, en læknisvottorð er hluti af skírteinum flugmanna.

Læknisskoðun fer m.a. fram í Fluglæknasetrinu að Ármúla 1A, 2 hæð.  Símapöntun í síma 551-6900 er tekin niður frá Mánudegi til Fimmtudags milli 15:00 og 18:00.  Utan þess er hægt að skilja eftir skilaboð með nafni og síma viðkomandi.  Mun skrifstofumaður þá hafa jafnskjótt samband og taka niður pöntun og frekari upplýsingar.  Athugið að ef um ítarlega skoðun er að ræða, getur allt ferlið tekið allt að 1 mánuði, þar sem skoðanir fara fram á nokkrum stöðum.  Jafnframt ber að athuga að hægt er að fara í skoðun 45 dögum áður, fyrir dagsetningu á fyrri læknisskoðun, án þess að það hafi áhrif á dagsetningu. 

Flugskóli Íslands hf. hefur einnig sett upp aeromed(hjá)simnet.is  til að hafa samband við ritara í gegnum rafrænan póst við skrifstofu fluglækna.  Það þarf jafnframt að staðfesta pöntun með símtali á opnunartíma.


Skráning hér á námskeið hjá Flugskólanum!



 

Flýtival í haus



Þetta vefsvæði byggir á Eplica