Hvernig flugnám hefst
Einkaflugmaður
Best er að byrja á því að bóka kynnisflug hjá flugdeild Flugskóla Íslands.
Afgreiðsla flugdeildarinnar úthlutar þér tíma, flugvél og flugkennara.
Áður en námið hefst að fullu og í síðasta lagi fyrir fyrsta einliðaflug ( sólóflug ) þarf flugneminn að verða sér úti um heilbrigðisvottorð hjá tilnefndum fluglæknum. Nánari upplýsingar um það má finna á síðunni Læknisskoðun.
Að því loknu gerir flugneminn námsmannasamning við Flugskóla Íslands. Þar með hefst nám til einkaflugmanns. Kennarinn flýgur með þér eftir fyrirfram samþykktu ferli fyrst um sinn og sendir þig svo eina(n) í æfingaflug þegar þú hefur náð nokkurri hæfni. Það er nefnt fyrsta einliðaflugið eða fyrsta sólóflugið. Við það öðlast flugneminn rétt til að fá flugnemaskírteini sem bundið er við Flugskóla Íslands.
Flugnemi þarf að sitja bóklegt námskeið til einkaflugmanns, sem kennt er oftast á kvöldin frá 18:30 til 22.00. Á sumrin er þó stundum boðið upp á styttri námskeið sem kennt er frá 16:30 til 22:00 virka daga.
Þegar flugneminn hefur náð tiltekinni færni er komið að lokaprófi hjá prófdómara Flugmálstjórnar Íslands.
Til að bóka kynnisflug vinsamlegast hafðu samband við verklegu afgreiðslu skólans í 514910 eða flightdesk(hjá)flugskoli.is

