Skóli atvinnulífsins
Nemendafélag

Frá félagsmálafulltrúa Tækniskólans

Heilir og sælir nemendur!

Velkomin/nn í hóp nemenda við Tækniskólann. Hér á eftir fylgja nokkur atriði sem gott er að vita. Nemendafélag er í hverjum fagskóla en svo er nemendasamband sem sér um viðburði fyrir alla nemendur Tækniskólans.

Virk nemendafélög innan skólans eru:

Nemendafélag Stýrimannaskólans

Nemendafélag Véltækniskólans

Nemendafélag Hársnyrtiskólans

Nemendafélag Hönnunar- og handverksskólans

Nemendafélag Raftækniskólans

Nemendafélag Byggingatækniskólans

Nemendafélag Upplýsingatækniskólans

Nemendafélag Margmiðlunarskólans

Nemendafélag Tæknimenntaskólans

Nemendasamband Tækniskólans

Ef þið hafið einhverjar fyrirspurnir eða óskir um viðburði hafið samband við formadur@nst.is.

Upplýsingar frá forvarnarfulltrúa:

Á hverri önn er í boði reykleysisnámskeið í skólanum, nemendum að kostnaðarlausu. Hvetjið endilega unglinga sem reykja til að fara á námskeiðið. Forvarnarfulltrúi í skólanum er Guðlaug Kjartansdóttir guk@tskoli.is.

Við minnum ykkur á að fylgjast með mætingu og einkunum í tölvukerfinu Innu. Upplýsingar um hvernig má nálgast aðgangsorð er að finna undir Gott að vita á heimasíðu skólans.

Með kveðju,

Hulda Birna Baldursdóttir, félagsmálafulltrúi og kennari, hbb@tskoli.is.


Slóð fyrir nemendur sem eru að dimmitera 2012. http://www.facebook.com/groups/283384795073199/






Tungumál